Ágætu íbúar Kolbeinsstaðahrepps og Eyja- og Miklaholtshrepps.
Laugargerðisskóli verður settur föstudaginn 20. ágúst klukkan 14:00
Nemendur munu hitta umsjónarkennara sinn og fá stundatöflur. Heitt verður á könnunni. Kennsla hefst svo mánudaginn23. ágúst. Líkt og undanfarin ár verður kennt fram að hádegi fyrstu dagana, þ.e. mánudaginn 23. og þriðjudaginn 24. ágúst.
Öll börn á skólaskyldualdri þurfa að vera skráð í skólann. Leikskóli verður starfandi líkt og síðasta ár. Þeir foreldrar sem ætla nýta sér leikskólann eru beðnir að hafa samband við Kristínu Björk skólastjóra í síma 4356601. Til að auðvelda foreldrum innkaup fylgir hér listi frá kennurum. Þetta er ekki innkaupalisti því flest af þessu gæti verið til frá í fyrra.
Fyrir íþróttir þarf stuttbuxur, stuttermabol, íþróttaskó, sundföt og sundgleraugu. Gera ráð fyrir útiíþróttum meðan veður leyfir í haust. Einnig ætlum að nota haustið sem mest til útikennslu/vinnu. Nemendur þurfa að reikna með útikennslu og útiveru næstu vikurnar.
Allir nemendur þurfa að hafa skriffæri, yddara, strokleður.
Að auki:
1.-4. bekkur: límstifti, tréliti og skæri. Teygjumöppu.
Nemendur í 5.-10. bekk þurfa teygjumöppu fyrir hvert bóklegt fag eða 1-2 harmonikumöppur.
5.-7. bekkur: Penni, límstifti, skæri, tvístrikaða stílabók (1 eða fleiri), reiknishefti og Skólakompu 3.
8.-10. bekkur: Lausblaðamappa, 2-4 A4 stílabækur, reikningshefti (ekki gormabækur), vasareiknir (hafa samráð við skóla), góður penni, orðabækur í ensku/dönsku æskilegar. Skóladagbók (þarf ekki að vera fullkomin því Mentor verður notaður v. heimavinnu og annars.)
Áður en keyptar verða stílabækur og reikningshefti er gott að athuga hvað til er frá í fyrra.
Æskilegt að sem flestir nemendur eigi inniskó í skólanum og ekki verra að útiföt séu vel merkt.
Starfsfólk Laugargerðisskóla