Tónlistardagur Steinunnar var haldinn í skólanum 26. nóv sl. Að venju var góð mæting enda alltaf gaman að sjá og heyra hversu vel nemendur standa sig í tónlistarnáminu. Nú eru 97% nemenda í tónlistarnámi og stóðu þau sig öll með mikilli prýði. (Myndir)
nóvember 2009
VATN OG VEÐUR
Í síðustu viku var breytt út af venjulegri kennslu og unnið með vatn og veður. Tilefnið var norræni loftslagsdagurinn 11. nóvember. Nemendur á miðstiginu hafa verið að læra um vatn og lífríki þess og því fléttaðist vatnið inn í þetta allt.
Yngstu nemendurnir gerðu margar og merkilegar athuganir á vatni, hvað flýtur, hvernig bátar þola mestan farm og var mikið sullað. Miðstigið stækkaði myndir frá Helgu og Selmu og málaði á vegginn í holinu. Inn á myndina verður svo hringrás vatnsins gerð. Að auki var miðstigið í mikilli tilraunastarfsemi. Var m.a. skoðað hvernig heitt og kalt vatn blandast, heitt loft látið blása upp blöðrur og sömuleiðis var ger látið þenja blöðrur. Skoðað var hvernig súrefni eyðist þegar logar á kerti í lokuðu rými. Elstu nemendurnir unnu veggspjöld um hugtök tengd loftslagi og umhverfi. Einnig gerðu þau skjólgirðingar við trén í möninni. Fullt af myndum komnar inn.
Tónlistardagur – foreldrakönnun
Við hérna í skólanum viljum minna á Tónlistardag Steinunnar sem verður fimmtudaginn 26. nóvember og hefst dagskráin kl. 14:00
Þá viljum við líka minna foreldra/forráðamenn á könnunina sem þau fengu í tölvupósti. Þó hún sé soldið löng þá tekur það ekkert mjög langan tíma að svara henni. Því fleiri svör sem við fáum þeim mun marktækari er hún.
Haustannáll
Haustannál frá skólastjóra.
Skólahald fór vel af stað í haust. Allir komu hressir og kátir eftir sumarfrí. Reynt var að færa kennsluna út í náttúruna.Eins og oft áður voru september og október frekar blautir og vindasamir og dregur það alltaf úr útiverunni. Íþróttirnar voru þó mikið úti og tóku nemendur þátt í norrænu skólahlaupi 09.09.2009. Þau hlupu samanlagt 125 km. Sem er býsna gott af ekki stærri hóp. Líffræðikennslan var flutt út að Kolviðarnesvötnum, þar fengu nemendur að veiða með hjálp Áslaugar líffræðikennara og Jóns bónda í Kolviðarnesi. Þar veiddust bæði álar og silungar og fuglar höfðu líka læðst í netið. Þetta má skoða nánar á myndum hér á heimasíðunni. Í stærðfræðinni hefur eitthvað verið um njóla stærðfræði en myndir ekki komnar af því. Nóvember hefur verið mildur og því eiga nemendur eftir að nota njólann eitthvað meira.
Haustið var þó frekar óvenjulegt og setti okkur meira í bóknámsgírinn en ella, því um miðjan september voru samræmd könnunarpróf í 4. 7. og 10 bekk, þau hafa aldrei verið haldin svona snemma áður. Tíminn engan veginn hugsaður út frá þörfum sveitabarna sem vilja helst stunda göngur og réttir og eyða sem mestum tíma í rollurag á þessum tíma. Við erum þó afar stolt af okkar nemendum í 10.bekk sem öll tóku próf, einn þeirra hefur bara búið 4 ár á Íslandi. Samkvæmt meðaltals einkunnum voru þau yfir landsmeðaltali í íslensku og stærðfræði og jöfn Norðvestur kjördæmi í ensku. Nú vita nemendur og kennarar hvar þarf að bæta um betur og hafa veturinn fram undan sem er afar jákvætt . Einn nemandi í 10. bekk stundar nám í stærðfræði í Menntaskólanum í Borgarnesi, mætir þar einu sinni í viku í framhaldi af skólahaldi hér á föstudögum en vinnur annað sem tilheyrir áfanganum í fjarnámi. Við bíðum síðan eftir niðurstöðum úr könnunarprófum fyrir 4. bekk og 7. bekk.
Árið 1995 var sett í lög að allir skóla eigi að stunda sjálfsmat og geta sýnt opinberlega hvað þeir eru að gera. Skólarnir byggja upp sitt sjálfsmat og eru teknir út af Menntamálaráðuneytinu á ca. 5 ára fresti. Einhvern veginn hefur það farið svo að margir litlu skólarnir hafa ekki passað vel inn í þetta úttektar kerfi Menntamálaráðuneytisins. Þar sem í ljós kom að kerfið sem við notuðum hér til sjálfsmats var ekki fullnægjandi var ákveðið að leita eftir nýju kerfi sem reynst hefur vel. Skólastjóri Árskóla og kennsluráðgjafi þeirra í Skagafirði kynnti kerfið Gæðagreinar fyrir skólastjóra samstarfskólanna í Vesturlandi. Eftir þann fund var ákveðið að nota það kerfi til sjálfsmats hér í Laugargerði. Í því kerfi taka allir starfsmenn þátt í vinnunni, starfsmannafundir sem eru haldnir í hverjum mánuði eru notaðir í þessa vinnu. Nemendur og foreldrar eru líka þátttakendur í matinu. Einn liður í þessu er könnun sem foreldrar eru vinsamlegast beðin að svara sem send var til þeirra í gær. Ef þið hafið ekki fengið könnunina þá vinsamlegast hafið samband við skólann.
Afrakstur vinnunnar verður síðan birtur í skýrslu. Til þess að komast enn betur inn í þetta kerfi hefur starfsfólk ákveðið að fara til Skagafjarðar einn föstudag.
Foreldrafélagið ætlar að sjá um skólahald þennan dag þ.e. 4. desember. Dagurinn verður helgaður fræðslu um hestamennsku, þar sem í stjórn foreldrafélagsins eru atvinnumenn í hestamennsku. Í skólanum eru mjög margir nemendur sem stunda hestamennsku í frítíma sínum. Tónlistin hljómar hér alla daga en 27 nemendur af 29 stunda tónlistarnám hér í skólanum. Veikindi nemenda hafa seinkað hinum eiginlegu annarskilum og foreldraviðtöl standa nú yfir. Ákveðið hefur verið að fresta tónlistardeginum um viku. Tónlistardagurinn verður þá kl 14:00, 26. nóvember. Þemavika hefur verið fastur liður í skólanum, nú höfum við breytt því þannig að opnir vinnudagar þar sem er meiri verkleg vinna, tilraunir og fleira, verða í hverjum mánuði. Í nóvember eru unnið með áhrif lofts og vatns á umhverfi og loftslag. Verklegu dagarnir verða 17. og 18. nóvember. Minni síðan á mánaðarbréfin þar er hægt að lesa dagskrána nánar. Ég minni á að foreldrar og allir velunnarar skólans eru alltaf velkomnir í heimskókn.
Klósettpappírssala
Nemendur standa nú fyrir klósettpappíssölu, og rennur ágóðinn til foreldrafélagsins, sem aftur hefur staðið fyrir leikhúsferðum fyrir nemendur.
Vinsamlegast takið vel á móti símtölum nemenda.
Allir hressir
Nemendur eru almennt allir mættir hressir og kátir, veðrið er fallegt og stillt, og óskum við þess að hafa veðrið svona fram undir jól.
Prófa og námsmatsvika sem gekk heldur brösulega heldur nú áfram og stefnt að foreldraviðtölum í næstu viku.