desember 2009

Litlu jól og jólafrí

Posted on desember 21, 2009 at 12:40 e.h. in

Litlu jólin voru haldin hátíðleg föstudaginn 18. demember. Nemendur mættu kl. 12:00 á stofujól. Þar var skipst á kortum og pökkkum og spjallað saman. kl. 13:30 hófst síðan skemmtun á sal og voru þa foreldrar og aðrir gestir mættir til að fylgjast með. Séra Guðjón las úr jólaguðsspjallinu og nemendur fluttu nokkur atriði. Síðan var dansað í kringum jólatréð og tveir sveinkar létu sjá sig og gáfu nammipoka. Deginum var síðan slúttað með kaffi. Myndir

Starfsfólk Laugargerðisskóla óskar öllum nær og fjær gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

Kennsla hefst aftur á nýju ári þann 4. janúar.

Jólastúss

Posted on desember 14, 2009 at 8:53 f.h. in

Nemendur tóku þátt í Aðventukvöldi á Breiðabliki. Nemendur gengu inn með kertaljós og sungu Við kveikjum kertum á. Sungið var með  kirkjukórnum og Óskari Péturssyni Skagfirðingi og Álftagerðisbróður, nokkur jólalög.  Magnús og Jóhannes í 10. bekk spiluðu jólalag á gítar og þá söng Ingibjörg  í 8. bekk einsöng. Stundin var hátíðleg  og bæði góð fyrir andann og efnið.

Jólastússið heldur áfram hér í skólanum, nemendur áttu  föndurstund á miðvikudaginn, þar voru skreyttir póstpokar sem hengdir verða upp í stofum til að taka við jólakortum  frá nemendum.

Nemendur eru í þann veginn að ljúka við að mála rúðurnar á bláaganginum,myndirnar koma vel út og greinilegt að til þeirra er vandað.

Jólakortagerð, bakstur og málun keramiks(leirmuna) er meðal þeirra handverka sem helst eru stunduð, fyrir utan það sem að ofan er talið.

Til stendur að hafa tvo föndurdaga enn fyrir jól, mánudagurinn og miðvikudagurinn eru þeir dagar sem áætlaðir eru. Þá munu nemendur halda áfram að skreyta skólann, föndra ýmsa hluti, baka og undirbúa Litlu jól.

Eldvarnir

Posted on desember 11, 2009 at 6:40 e.h. in

Þann 8. des komu þau Haukur frá eldvarnareftirlitinu og Laufey úr lögreglunni í Borgarnesi í heimsókn til okkar. Tilefnið var að fara yfir eldvarnir með yngstu börnunum og meðferð flugelda hjá elstu krökkunum. Í lokin var svo haldin brunaæfing sem heppnaðist ágætlega í flesta staði. Sjá myndir.

Föndurstund(ir)

Posted on desember 7, 2009 at 3:05 e.h. in

Þar sem styttist til jóla er ekki seinna vænna að snúa sér að smá föndri. Eins og fram hefur komið var foreldrafélagið með sitt árlega jólaföndur sl. fimmtudag. Nemendur hafa líka verið að föndra annað t.d. í handmennt hjá Áslaugu þar sem leirþema hefur verið á dagskrá. Einnig voru teiknaðir stórir víkingar. Elsta stigið hefur verið í smá trévinnu hjá Sigga. Afrakstur af öllu þessu má nú sjá á myndasíðu.

Föstudagurinn 4. desember.

Posted on desember 7, 2009 at 2:46 e.h. in

Föstudaginn sl. var heldur óvanalegur. Flestir úr starfsliði skólans fór  norður í Skagafjörðinn að skoða leik- og grunnskólana á Sauðárkróki og í Varmahlíð. Þetta var verulega skemmtileg og um leið fróðleg ferð. Við sáum og heyrðum nemendur  í Árskóla æfa sig fyrir Lúsíuhátíðina. þau sungu af mikilli innlifun og algjörlega ófeimin. Einnig var kíkt inn í verkgreinakennslu hjá miðstiginu, dönsku hjá 9. bekk og 10. bekkur var að lesa Grettissögu. Þau voru ekki alveg viss hvar Grettisbæli var.  Eftir mat og stutt spjall um sjálfsmat var brunað í Varmahlíð og Hefa og Magga sóttar í leikskólann áður en Varmahlíðarskóli var skoðaður. Skólastjórahjónin buðu okkur svo heim í mikla kaffiveislu.

Foreldrafélagið tók að sér kennslu þennan dag og okkur skilst að það hafi tekist svona ljómandi vel. Þema dagsins var hestamennska og var m.a. tekið sérstaklega á öryggisatriðum eins og hjálmanotkun.  Allir nemendur fengu veggspjaldið Íslenski hesturinn - þjálfunarstigin að gjöf  frá Félagi tamningamanna.  Í lokin fóru eldri nemendurnir að undirbúa útvarpsþáttinn sem þau verða með á þriðjudaginn (Útvarp Óðal) og hin máluðu gluggana sína eða spiluðu.

Frábær dagur hjá öllum og viljum við þakka foreldrum kærlega fyrir daginn. Miðað við hversu vel tókst til verður örugglega reynt að endurtaka þetta.

Desember

Posted on desember 3, 2009 at 12:10 e.h. in

Nú hafa nemendur byrjað að mála myndir á rúðurnar á bláaganginum, þetta eru skemmtilegar myndir og mikið búið að undirbúa hvað skal mála.

Foreldrarfélagið stendur fyrir föndri í dag, og komu hér galvaskar mömmur til að undirbúa herlegheitin. Tilhlökkun liggur í loftinu og eftir hádegi  geta stórir og smáir föndrað jólakort, skreytt kerti og ýmislegt fleira.

Top