Við minnum á að janúarbréfið er hægt að skoða í mánaðarbréfum, þar stendur skipulagið fyrir þennan mánuð. Fyrsta skólavikan var ótrúlega löng, heil vika svona strax eftir jólafrí. Núna eru 6. og 7. bekkur í Reykjaskóla í góðu yfirlæti. Í næstu viku miðvikudaginn 20. janúar fáum við tónlistarmenn í heimsókn, þá hlustum við á tónlistarferðalag gítars og fiðlu. Trausti smíðakennari er kominn til okkar á fimmtudögum öllum til mikillar gleði. Annars eru allir að komast í námsgírinn því nú styttist í næsta námsmat. Klara Bragadóttir sálfræðingur kemur miðvikudaginn 27. janúar . Munið að hafa samband ef þið óskið eftir þjónustu hennar.