febrúar 2010

Öskudagur

Posted on febrúar 19, 2010 at 10:39 f.h. in

Sú hefð hefur skapast hér á öskudaginn að eftir hádegi er kenndur einn tími og síðan fara krakkarnir og klæða sig upp. Þegar allir eru komnir í búning hefst hefðbundin gleði. Fyrst er byrjað á smá marseringu til að hita mannskapinn upp og síðan er kötturinn sleginn úr tunnunni. Tunnukóngur í ár var Eyvindur Enok úr leikskólanum. Eftir tunnubarsmíðar fengu allir sælgæti og gátu spjallað í smá tíma og síðan farið heim á venjulegum tíma. (Myndir)

Bláa gullið.

Posted on febrúar 18, 2010 at 1:09 e.h. in

Þriðjudaginn 16. febrúar fóru nemendur í 4. og 5. bekk til Reykjavíkur að sjá leikritið Bláa gullið. Ferðin var í boði Orkuveitunnar og nemendum að kostnaðarlausu. Öddi keyrði í Borgarnes og þar söfnuðust nemendur úr skólum á Vesturlandi í rútu.Bláa gullið er um vatnið og gildi þess, nýtingu og fleira. Krökkunum fannst þetta mjög skemmtilegt en 5. bekkingarnir sögðust nú hafa vitað allt um vatnið. Þau höfðu líka verið að vinna með hringrás vatnsins fyrir jól og m.a. málað flotta skýringarmynd á einn vegginn á flísaganginum.

Dagur stærðfræðinnar

Posted on febrúar 11, 2010 at 8:07 f.h. in

Sl. föstudag var dagur stærðfræðinnar. Við frestuðum honum til miðvikudags svo allir nemendur gætu tekið þátt í hinni árvissu og æsispennandi skutlukeppni. Í tilefni dagsins var stærðfræðikennsla mið og elstastigs brotin upp og nemendur unnu við að gera svokölluð hugtakakort. Einnig voru ýmis stærðfræðispil og þrautir dregin fram. Í lok dags var svo skundað í íþróttahúsið. Allir nemendur höfðu gert skutlur af ýmsum stærðum, og kom í ljós að hér skipti stærðin máli. Þeir sem áttu lengstu köstin voru Axel 9. bekk með 13,60 m    Tumi 5. bekk 16,60 m og átti hann jafnframt lengsta kastið. Inga Dóra 4.bekk var svo með lengsta kastið hjá yngsta stiginu, 8,20 m. Þeir Jón Haukur og Eyvindur Enok leiksskóladrengir, slógu svo mörgum eldri við með köst upp á 6,30 m og 5,90 m. (Myndir)

Stjörnufræði

Posted on febrúar 10, 2010 at 1:35 e.h. in

Allir nemendur Laugargerðisskóla fóru í heimsókn í Menntaskólann í Borgarfirði. Tilgangurinn með heimsókninni var að hlusta á fyrirlestur um stjörnufræði í stjörnuskoðunarkúlu.

Kúlunni / tjaldinu var komið fyrir í hátíðarsal Menntaskólans og það skriðu nemendur inn og lögðust á bakið , horfðu upp í himinhvolfið, eða mynd af því sem varpað  var upp í hvelfingu kúlutjaldsins.

Nemendur fræddust um stjörnumerki, reikistjörnu og fastastjörnur, og sólkerfið.

Þetta var ánæguleg og fræðandi heimsókn, og tíminn var fljótur að líða, að heimsókn lokinni voru nemendur keyrðir heim.

Trygg framtíð Laugargerðisskóla

Posted on febrúar 2, 2010 at 5:29 e.h. in

Þann 1. febrúar var undirritaður samningur milli Eyja- og Miklaholtshrepps og Borgarbyggðar um slit á byggðasamlagi um Laugargerðisskóla. Jafnframt var undirritaður þjónustusamningur til fimm ára, milli sveitarfélaganna um að þeir nemendur úr Borgarbyggð sem búsettir eru í Kolbeinsstaðahreppi geti áfram stundað nám í Laugargerðisskóla.

Eyja- og Miklaholtshreppur hefur því alfarið tekið við rekstri skólans en Borgarbyggð mun kaupa þjónustu Laugargerðisskóla fyrir börn úr Kolbeinsstaðahreppi.

Top