mars 2010

Skólahreysti

Posted on mars 24, 2010 at 1:06 e.h. in

Þann 18. mars sl. var farið með 8. -10. bekk á höfuðborgarsvæðið til að taka þátt í Skólahreysti.

Til að nýta ferðina var ákveðið að byrja á að skoða Borgarholtsskóla. Þar tók á móti okkur Óttar námsráðgjafi sem gekk með hópinn um skólann. Þar sem börnin okkar höfðu mestan áhuga á verknáminu var byrjað að skoða allt sem viðkemur bifvélum. Þar var margt fróðlegt að sjá og virtust flestir áhugasamir. Síðan var farið um listdeildina og spjallað við nemendur sem voru að vinna að lokaverkefni við myndbandagerð. Að endingu tókum við smá rúnt um bókasafnið.

Að þessari heimsókn lokinni var farið í Smárann en þar áttu keppendur að vera mættir klukkustund fyrir keppni. Hinir fóru í smáleiðangur í Smáralind á meðan. Keppnin hófst síðan kl. 13:00 og voru þarna keppendur frá 11 skólum á vesturlandi og 4 frá vestfjörðum. Það er óhætt að segja að töluvert stuð var á pöllunum á meðan keppni stóð og  að flestir hafi skemmt sér vel. Keppendurnir stóðu sig vel miðað við að þetta var í fyrsta sinn og vonandi verður framhald á.

Eftir keppni var farið með allan hópinn í Smáralind þar sem við nærðumst og síðan var haldið á kvikmyndasýningu. Held að allir hafi farið ánægðir heim að kvöldi.  (Myndir)

Stóra upplestrarkeppnin.

Posted on mars 17, 2010 at 6:02 e.h. in
 

Úrslitahátíð  Stóru Upplestrarkeppninnar var haldin hjá okkur í  Laugargerðisskóla í gær. Þarna mættust 12 upplesarar frá 6 grunnskólum, þ.e. Varmalandi, Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum,  Auðarskóla í Dölum, Grunnskólanum í Borgarnesi, Heiðarskóla og svo auðvitað Laugargerðisskóla. Byrjað var á að flytja stutt atriði úr Vælukjóa og síðan hófst lesturinn. Hver keppandi las þrisvar, fyrst skiptu lesararnir á milli sín kafla úr einni af Árnabókunum eftir Ármann Kr Einarsson. Síðan var lesið ljóð eftir Þorstein frá Hamri og að lokum sjálfvalið ljóð. Ragnar á Jörfa var fulltrúi okkar og varð í 3. sæti. Annar varð  Brynjar Björnsson frá Grunnskóla Borgarfjarðar og í fyrsta sæti Hrund Hilmisdóttir úr Grunnskólanum í Borgarnesi.  (Myndir)

Stærðfræði

Posted on mars 16, 2010 at 8:51 f.h. in

Miðvikudaginn 10. mars fóru allir nemendur í 8. – 10. bekk á Akranes og tóku þátt í stærðfræðikeppni í FVA. Ferðin var einnig notuð til að skoða sig um í skólanum. Ólafur námsráðgjafi tók á móti hópnum og spjallaði aðeins við þau og kynnti fyrir þeim hvað væri í boði. Þá var gengið um ganga skólans og það helsta skoðað. Mest var skoað í verklega hlutanum enda margt skemmtilegt að sjá eins og þó nokkrir fyrrum nemendur Laugargerðisskóla sem við rákumst á.

Eftir keppni var öllum boðið upp á pizzu og kók og síðan var haldið heim á leið og voru bara allir nokkuuð sáttir við daginn.

Árshátíð

Posted on mars 8, 2010 at 1:48 e.h. in

Árshátíðin okkar var á laugardaginn. Fluttir voru þættir úr söngleiknum Vælukjói eða Cry-Baby. Krakkarnir stóðu sig frábærlega og sjaldan  fengið jafn mikið hrós eins og að lokinni sýningunni. Allir nemendur skólans tóku þátt, sumir í fleiri en einu hlutverki. Eftir sýningu var svo veglegt kökuhlaðborð en nemendur 7.-10. bekkjar sjá um veitingar að mestu leyti. (Myndir)

Árshátíð-undirbúningur

Posted on mars 2, 2010 at 10:32 f.h. in

Nú líður senn að árshátíð skólans en hún verður laugardaginn 6. mars kl. 14:00. Sýnd verða atriði úr söngleiknum Vælkjói. Undirbúningur er nú á fullu og hefur allt gengið vonum framar enda nemendur orðnir ansi sjóaðir í þessari vinnu. Myndir frá undirbúningsvinnu má sjá hér.

Top