apríl 2010

Óvæntur gestur, tónlist og dans

Posted on apríl 27, 2010 at 6:42 e.h. in

Í dag birtist óvæntur gestur á skólasvæðinu. Um var að ræða sel sem synt hafði upp Haffjarðará á morgunflóðinu og orðið eftir. Var hann eitthvað lasburða þegar hann var skoðaður nánar en hvæsti ef einhver nálgaðist of mikið. Eitthvað hresstist „Snorri“ yfir daginn því þegar falla fór að seinni partinn tókst honum að bægslast út í á og eflaust niður í sjó. (Myndir)

Viljum minna alla sem áhuga hafa á dansi og tónlist á skemmtunina í skólanum fimmtudaginn 29. apríl kl. 13:00 en þá verður danssýning í íþróttahúsinu og síðan tónlistardagur Steinunnar upp í skóla. Allir velkomnir.

Annasamur apríl.

Posted on apríl 19, 2010 at 8:21 f.h. in

Það hefur svo sannarlega verið mikið um að vera það sem af er apríl.

Fyrir páska var byrjað að vinna við útgáfu skólablaðsins okkar. Stjáni fór með nemendum í Borgarnes að safna auglýsingum og bændur vítt og breitt á svæðinu heimsóttir og teknir í viðtal. Gunnar Bender kom svo í síðustu viku og hann og Siggi unnu við uppsetningu og  fleira. Blaðið er farið frá okkur í prentun og kemur vonandi út sem fyrst.

Danskennslan er byrjuð og verður á þriðjudögum og fimmtudögum. Henni lýkur svo með danssýningu þ. 29. apríl, en þá verður líka tónlistardagur Steinunnar.

Úrslitin í Stærðfræðikeppninni sem haldin var á Akranesi 10. mars, voru kynnt  laugardaginn 10. apríl. Perla var í 4.-10. sæti í sínum árgangi, Flott hjá henni.

Svo styttist óðfluga í próf og vordaga, bæði í skóla og heima.

Að loknu páskaleyfi

Posted on apríl 9, 2010 at 10:46 f.h. in

Að þessu sinni byrjar apríl í páskaleyfi og við vonum að allir hafi notið páskanna. Mars var viðburðarríkur mánuður, með árshátíð sem tókst mjög vel og við vonum að allir hafi skemmt sér vel. Nú styttist skólaárið og tíminn líður ansi hratt og því er mikilvægt að nemendur nýti nú þennan stutta tíma eins vel og hægt er til náms.

Top