Föstudaginn 21. maí var farið í hina árlegu óvissuferð Laugargerðisskóla. Nemendur fá þessa ferð fyrir góða hegðun og ástundun. Að þessu sinni var haldið til Akraness, ferðin bæði námsferð og skemmtiferð fyrir nemendur frá 5.-10. bekk. Byrjað var á því að skoða Byggðasafnið að Görðum, þar var tekið á móti okkur með góðri leiðsögn. Skoðað var íþróttasafn Íslands, þar sem saga íþrótta og afreksmanna er rakin frá fyrstu tíð. Einnig voru skoðuð hús og munir frá fyrri tíð en byggðasafnið varðveitir heildstætt safn muna sem tilheyrðu fyrri tíðar búskaparháttum. Þar eru bílar, bátar, kútterar og fleira sem fróðlegt var að skoða. Nemendur voru fróðleiksfúsir, kurteisir og skólanum sínum til sóma. Eftir það var haldið í sundlaugina þar sem hægt var að leika sér í sól og blíðu. Enduðum heimsóknina á Galitó þar sem beið okkar gómsætt pizza-hlaðborð þar sem allir gátu borðað að vild. (Myndir)
Nú tekur við frí fram á föstudag fyrir nemendur 1.-7. bekk en 8.-10. bekkur heldur af stað í skólaferðalag í dag annan í hvítasunnu og koma heim á fimmtudag. Starfsdagar eru þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag.
Skólaslit Laugargerðisskóla verða föstudaginn 28. maí kl. 14:00 allir velunnarar skólans eru velkomnir.