júní 2010

Gleðilegt sumar – Skólaslit

Posted on júní 4, 2010 at 11:15 f.h. in

Laugargerðisskóla var slitið föstudaginn 28, maí við hátíðlega athöfn. Skólaárið hefur verið farsælt og allir glaðir að halda út í sumarið. 7 nemendur útskrifuðust úr 10. bekk að þessu sinni og þrjú af þeim fengu verðlaun á skólaslitum. Kristín Perla Sigurbjörnsdóttir hlaut bókaverðlaun fyrir góða ástundun og góðan námsárangur. Aldís Sunna Jónsdóttir hlaut  bókaverðlaun fyrir miklar framfarir í námi þetta skólaárið. Magnús Kristjánsson er íþróttamaður Laugargerðisskóla, en hann fær farandbikar og verðlaunapening.   Íþróttakona ársins sem hlaut samskonar  verðlaun er Valgerður Á Sigurðardóttir 8.bekk. Á miðstigi fékk Þórður Sigurðsson bókaverðlaun fyrir góða ástundun.  Á yngsta stigi var sundmaður ársins Bjarki Ásbergsson sem fékk veðlaunapening fyrir miklar framfarir. Einnig fékk Hallbjörn Heiðar Sigurðsson bókaverðlaun fyrir miklar framfarir í lestri. (Myndir)

Síðasti kennarafundur var haldinn 1. Júní en þessa viku hafa kennarar og skólastjóri undirbúið kynningu á þróunarstarfinu Borgarfjarðarbrúin. Síðasti formlegi starfsdagurinn er 7. júní haldinn í Borgarnesi.

Þakka öllum nemendum, foreldrum og starfsfólki fyrir gott samstarf á þessu skólaári

Skólahald byrjar síðan aftur með starfsdögum kennara 16.ágúst og skólasetning verður föstudaginn 20.ágúst

Skólastjóri

Skólaferðalag

Posted on júní 2, 2010 at 9:53 f.h. in

Dagana 24. – 27. maí héldu 8.-10. bekkur í skólaferðalag.

Lagt var af stað frá Laugargerði kl. 16:00, mánudaginn 24. Leiðin lá til Þorlákshafnar til að ná Herjólfi, með einu sjoppustoppi í Reykjavík. Við fengum frábært veður og hreyfðist skipið lítið á leiðinni. Daginn eftir var farið í skoðunarferðir. Fyrir hádegi var sigling og fengum við smá bónus þar sem við rákumst á háhyrningavöðu. Seinni partinn var svo farið í rútuferð um Heimaey þar sem bílstjórinn sagði okkur ýmsar skemmtisögur. Einnig lentum við í öskubyl þegar gengið var á Eldfell. Frítímanum í Eyjum var eytt á ýmsa vegu: farið í sund, sprangað,  eða bara röltað um bæinn.

Miðvikudagurinn var tekinn snemma. Farið á fætur upp úr 7 enda brottför með Herjólfi kl 8:15. Ekki var veðrið síðra núna og varla hreyfing á skipinu. Þegar komið var í land var haldið til Selfoss þar sem aðeins var verslað og síðan lá leiðin á Drumboddsstaði þar sem ætlunin var að fara í „rafting“ á Hvítá.

Við vorum hluti af 90 manna hóp og var siglt á 8 bátum. Óhætt er að segja að allir hafi skemmt sér konunglega þó misblaut höfum við verið að ferð lokinni. Eftir maganæringu var halið að Minniborgum þar sem síðustu nóttinni var eytt í sumarbústað. Eitthvað var hópurinn farinn að lýjast því þrátt fyrir að mega vaka síðustu nóttina voru allir sofnaðir fyrir miðja nótt.

Þar sem liðið vaknaði bara tiltölulega snemma á fimmtudeginum var bara drifið í að borða og þrífa og lagt af stað heim. Komið var við á Þingvöllum fyrir ís og síðan fóru nokkur í sund í Borgarnesi. Komið var á endastöð í Laugargerði um kl. 16:00 og tók því ferðin nákvæmlega 3 sólarhringa.

Ég vill þakka öllum krökkunum fyrir frábæra ferð og auðvitað voru allir stilltir og sjálfum sér og skólanum til sóma. Kærar þakkir líka til Huldu sem var bílstjórinn okkar á fastalandinu og kom auðvitað líka með til eyja. (Myndir)

Top