Það hefur svo sannarlega verið mikið um að vera það sem af er apríl.
Fyrir páska var byrjað að vinna við útgáfu skólablaðsins okkar. Stjáni fór með nemendum í Borgarnes að safna auglýsingum og bændur vítt og breitt á svæðinu heimsóttir og teknir í viðtal. Gunnar Bender kom svo í síðustu viku og hann og Siggi unnu við uppsetningu og fleira. Blaðið er farið frá okkur í prentun og kemur vonandi út sem fyrst.
Danskennslan er byrjuð og verður á þriðjudögum og fimmtudögum. Henni lýkur svo með danssýningu þ. 29. apríl, en þá verður líka tónlistardagur Steinunnar.
Úrslitin í Stærðfræðikeppninni sem haldin var á Akranesi 10. mars, voru kynnt laugardaginn 10. apríl. Perla var í 4.-10. sæti í sínum árgangi, Flott hjá henni.
Svo styttist óðfluga í próf og vordaga, bæði í skóla og heima.