Fimmtudaginn 29. apríl var tvöföld uppskeruhátíð hérna í skólanum.
Fyrst var hin árlega danssýning í lok danskennslu hjá henni Ásrúnu. Fór hún fram í íþróttahúsinu og komu þar allir nemendur fram, frá leikskóla og upp í 10. bekk, og sýndu hvað þau hefðu verið að læra. Voru áhorfendur mjög ánægðir að vanda.
Þá var haldið upp í skóla og nú tók Steinunn við og léku nemendur á hljóðfæri og sungu fyrir gesti við góðar undirtektir gesta. Að sýningum loknum var foreldrafélagið með kaffi- og vöfflusölu í þágu nemenda. (Myndir)