10.-11. maí voru vordagar hérna í skólanum þar sem unnin voru þessi hefðbundnu útivorstörf: tiltekt, gróðursetning, hreinsa blómabeð ofl. Nokkrir úr elsta stigun tóku t.d. til í gróðurhúsinu og endurplöstuðu það svo nú verður hægt að nýta það til ræktunar næsta vetur.
Mánudaginn 10. maí var farið með yngstudeildina og elstu krakkana af leikskólanum í fjöruferð. Að vanda var farið í Skógarnesfjöru og er óhætt að segja að allir hafi skemmt sér vel við að sulla í sjónum eða leita af dýrum og búa eitthvað til í sandinum. Eitthvað var um það að nemendur blotnuðu örlítið í fæturna.
Eftir hádegi var síðan farið með allan leikskólann í sund og voru foreldrar og stelpur úr efsta stiginu fengnar til að aðstoða með krakkana. Var það auðvitað mikið fjör í ýmsum leikjum hjá Ödda og svo auðvitað bara að busla enda veðrið alveg frábært.
Á þriðjudeginum var svo hátíðarmatur hjá Áslaugu og var setið óvenju lengi að borðum þennan dag enda kræsingar miklar og glæsilegar. (Myndir)