Fimmtudagurinn 20. maí var eiginlegur lokadagur hér í skólanum. Margt var þá til gamans gert t.d. gerðu krakkarnir á yngsta stiginu báta úr frauðplasti og fóru síðan í smá keppni í sundlauginni þar sem bátur Jónu Maríu bar sigur úr býtum. Krakkarnir á miðstiginu pökkuðu inn hráum eggjum sem síðan var kastað niður úr brunastiganum. Öll eggin komust heil til jarðar en fallegasta pakkningin var eftir þá Ársæl og Þórð Má. Nemendur á elsta stiginu kepptu síðan í „skúlptúr“ gerð úr pappír og njóla og þar unnu þau Björg, Ingibjörg og Magnús sigur. Stjórn foreldrafélagagsins kom og grillaði pylsur fyrir liðið og allir fengu að fara í sund. Yngta stigið fór heim á venjulegum tíma en 5.-10. bekkur var eftir á löngum degi til kl. 22:00. (Myndir)
Leave a Reply