Dagana 24. – 27. maí héldu 8.-10. bekkur í skólaferðalag.
Lagt var af stað frá Laugargerði kl. 16:00, mánudaginn 24. Leiðin lá til Þorlákshafnar til að ná Herjólfi, með einu sjoppustoppi í Reykjavík. Við fengum frábært veður og hreyfðist skipið lítið á leiðinni. Daginn eftir var farið í skoðunarferðir. Fyrir hádegi var sigling og fengum við smá bónus þar sem við rákumst á háhyrningavöðu. Seinni partinn var svo farið í rútuferð um Heimaey þar sem bílstjórinn sagði okkur ýmsar skemmtisögur. Einnig lentum við í öskubyl þegar gengið var á Eldfell. Frítímanum í Eyjum var eytt á ýmsa vegu: farið í sund, sprangað, eða bara röltað um bæinn.
Miðvikudagurinn var tekinn snemma. Farið á fætur upp úr 7 enda brottför með Herjólfi kl 8:15. Ekki var veðrið síðra núna og varla hreyfing á skipinu. Þegar komið var í land var haldið til Selfoss þar sem aðeins var verslað og síðan lá leiðin á Drumboddsstaði þar sem ætlunin var að fara í „rafting“ á Hvítá.
Við vorum hluti af 90 manna hóp og var siglt á 8 bátum. Óhætt er að segja að allir hafi skemmt sér konunglega þó misblaut höfum við verið að ferð lokinni. Eftir maganæringu var halið að Minniborgum þar sem síðustu nóttinni var eytt í sumarbústað. Eitthvað var hópurinn farinn að lýjast því þrátt fyrir að mega vaka síðustu nóttina voru allir sofnaðir fyrir miðja nótt.
Þar sem liðið vaknaði bara tiltölulega snemma á fimmtudeginum var bara drifið í að borða og þrífa og lagt af stað heim. Komið var við á Þingvöllum fyrir ís og síðan fóru nokkur í sund í Borgarnesi. Komið var á endastöð í Laugargerði um kl. 16:00 og tók því ferðin nákvæmlega 3 sólarhringa.
Ég vill þakka öllum krökkunum fyrir frábæra ferð og auðvitað voru allir stilltir og sjálfum sér og skólanum til sóma. Kærar þakkir líka til Huldu sem var bílstjórinn okkar á fastalandinu og kom auðvitað líka með til eyja. (Myndir)