Ágætu foreldrar og aðrir forráðamenn!
Þá lítur hér dagsins ljós nýr upplýsingabæklingur þar sem er farið yfir helstu atriði sem við höldum að komi ykkur að gagni og gott sé að hafa heima við. Á vef skólans kemur svo skólanámskráin, fréttabréfin og fleira. Netfang skólans er: www.laugargerdisskoli.is
Það er von okkar að þessi bæklingur sé upplýsandi um skólastarfið og komi að gagni þegar þið viljið ná til skólans, kennara eða annars starfsfólks. Athugið þó, að ekki er víst að alltaf komist einhver til að svara í símann í skólanum en í viðtalstímum kennara eru þeir við símann. Gott væri að fá upplýsingar frá ykkur ef það eru einhver atriði sem vantar eða betur mættu fara. Ef tilkynna þarf veikindi er best að gera það í síma 4356600 kl: 8:00 – 8:30
Munið að þið eruð ætíð velkomin í skólann. Sjón er sögu ríkari. Vinnum saman að velferð nemenda Laugargerðisskóla.
Stefna og markmið Laugargerðisskóla
- Að starfa eftir lögum um grunnskóla og búa nemendur undir líf og starf í lýðræðisþjóðfélagi
- Að veita nemendum haldgóða menntun, þroska sjálfstæða hugsun og vinnubrögð.
- Að öllum líði vel í Laugargerðisskóla
- Að taka mið af þörfum hvers og eins nemenda og aðstoða til aukins þroska á forsendum hvers og eins.
- Einelti er ekki liðið í Laugargerðisskóla
- Að vinna í nánu samstarfi við foreldra og taka mið af umhverfi skólans.
- Nemendum skal tamin ábyrgð og virðing fyrir náttúru og menningu, sjálfum sér og öðrum.
MENNTUN – METNAÐUR
TRAUST – VIRÐING – VINÁTTA
Laugargerðisskóli er fámennur skóli í afar fallegu umhverfi þar sem landbúnaðarstörf eru aðalatvinna flestra foreldranna. Reynt er að nota umhverfið og aðstæður þessar sem mest í þágu nemenda. Haustferðir eru hluti af þeirri vinnu.
Skólinn hefur mótað sér stefnu í umhverfismálum og er þátttakandi í Grænfánaverkefni Landverndar. Endurvinnslugámur er við skólann. Hluti af pappírnum er nýttur í pappamassa í skólanum
Í endurmenntunarstefnu skólans er megináhersla lögð á einstaklingsmiðað nám, og mat á skólastarfi. Haustið 2008 fengum við kennsluráðgjafa frá skólaskrifstofu Skagfirðinga til að fræða okkur meira um sjálfsmat. Ákveðið hefur verið að vinna eftir kerfi sem nefnist „Gæðagreinar“ Þannig er skólastarfið allt metið á skipulegan hátt með þátttöku alls starfsfólks. Mentor.is verður notað til náms og áætlanagerða. Foreldrar geta fengið lykilorð til að fylgjast með ástundun og árangri sinna barna. Sérstök kynning verður til að kynna námið og Mentor fyrir foreldra og forráðamenn á haustönn.
Þróunarstarf er unnið í samvinnu við skóla í Borgarfirði. Nefnist það Borgarfjarðarbrúin, þetta er þriðja árið í þessu samstarfi. Kennarar hafa farið á tvö námskeið nú á haustönn í tengslum við Borgarfjarðarbrúna. Megináhersla í ár er þróun á námsmati og kennsluháttum. Námsmat er í endurskoðun, stefnt er að fjölbreyttara námsmati.
Símaskrá Laugargerðisskóla
Skólastjóri 4356601
Bréfsími 4356603
Kennarastofa 4356600
Eldhús 4356702
Íþróttahús 4356608
Leikskóli 4356604
Kristín Björk Guðmundsdóttir, skólastjóri 5540446, 8944600
Halla Guðmundsdóttir, kennari 4356657
Sigurður Jónsson, kennari 4356605
Áslaug Sigvaldadóttir, kennari 4356639
Friðbjörn Ö.Steingrímsson, kennari 5540446, 8610452 Klara Bragadóttir, sálfræðingur 4356729
Ásrún Kristjánsdóttir, danskennsla 8634999
Steinunn Pálsdóttir, tónlistarkennsla 8996134
Áslaug Guðmundsdóttir, ráðskona 4356609
Herdís Þórðardóttir, leikskólastjóri 4356772
Guðbjörg Gunnarsdóttir, skólaliði 4356605
Margrét Ragnarsdóttir, skólaliði 4356782
Sesselja Oddsdóttir, skólaliði 4356625
Sigrún Ólafsdóttir reikningshaldari 4356697, 8628422
Gestur Úlfarsson, bílstjóri 4356735, 8936735
Halldór Jónsson, bílstjóri 4356609,
Ólafur Sigvaldason, bílstjóri 4356760, 6619860
Heimasíða skólans www.laugargerdisskoli.is
Netföng
Laugargerðisskóli, skólastjóri laugarg@ismennt.is
Laugargerðisskóli, kennarar laugargk@ismennt.is
Halla Guðmundsdóttir dalsmynn@ismennt.is
Sigurður Jónsson sigjonss@ismennt.is
Friðbjörn Ö. Steingrímsson oddi@ismennt.is
Áslaug Sigvaldadóttir asla@ismennt.is
Sigrún Ólafsdóttir sigolafs@ismennt.is
Steinunn Pálsdóttir steinkapals@simnet.is
Viðtalstímar kennara
Áslaug Sigvaldadóttir 1-4.bekkur miðvikudagar kl. 9:30 – 10:10
Sigurður Jónsson 5.7. bekkur mánudagar kl. 13:50 – 14:30
Halla Guðmundsdóttir 8-10. bekkur miðvikudagar kl. 13:00 – 13:40
Símatími reikningshaldara
Sigrún Ólafsdóttir 4356697, 8628422 Mánudagar kl. 11:00-12:00
Foreldrafélag og skólaráð.
Í Laugargerðisskóla starfar foreldrafélag og eru allir foreldrar og forráðamenn sjálfkrafa félagar þess. Markmið félagsins er að styrkja í hvívetna og vinna að heill og hamingju nemenda.
Stjórn foreldrafélags Ásdís Ólöf Sigurðardóttir
Bryndís Hulda Guðmundsdóttir
Katrín Gísladóttir
Skólaráð
Samkvæmt 8.gr. grunnskólalaga skal starfa skólaráð sem er samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélags um skólahald. Skólaráð tekur þátt í stefnumörkun fyrir skólann og mótun sérkenna hans. Skólaráð er skipað 7 einstaklingum til tveggja ára í senn. Tveimur kennurum, tveimur foreldrum, einum starfsmanni og skólastjóra. Skólaráð velur að auki einn fulltrúa grenndarsamfélags til að sitja í ráðinu eða viðbótarfulltrúa úr hópi foreldra. Fulltrúar nemenda eiga kost á að taka þátt í umræðum um velferðarmál þeirra. Fulltrúar foreldra í skólaráði 2008-2010 eru Branddís M. Hauksdóttir og Sigríður J. Sigurðardóttir.
Í skólanum starfar nemendafélag sem kemur að félagsstarfi, fjáröflun og fleiru. Kosin er stjórn úr 4 elstu árgöngunum.
Nemendaráð
Aðalmenn Varamaður
Stjórn rekstrar og skólanefndar Laugargerðisskóla
Á fundum sitja einnig skólastjóri, reikningshaldari og fulltrúi Borgarbyggðar Finnbogi Rögnvaldsson. Fulltrúar kennara og foreldra bætast einnig við þegar málefni skólanefndar eru rædd.
Ýmislegt
Sérfræðiþjónusta.
Beiðni um aðstoð þarf að koma frá foreldrum, umsjónarkennara eða skólastjóra. Stöku sinnum vex foreldrum í augum að barn þeirra þurfi sérfræðiaðstoð eða vísun til sálfræðings. Hafa ber í huga að sérfræðiþjónusta er dýrmætur stuðningur við allt skólastarf og getur í mörgum tilvikum gert gæfumuninn. Það skal ítrekað að farið er með öll mál sem trúnaðarmál.
Klara Bragadóttir kemur í skólann og fundar með kennurum og/eða foreldrum eftir þörfum. Hún tekur að sér greiningu nemenda og viðtalsmeðferð.
Náms-og starfsráðgjöf verður skipulögð í samráði við Borgarnes en sameiginlegum náms og starfsráðgjafa var sagt upp störfum þar.
Einelti
Einelti er undir engum kringumstæðum liðið í Laugargerðisskóla. Komi slík mál upp er unnið samkvæmt eineltisáætlun skólans. Nauðsynlegt er að foreldrar láti skólann strax vita ef þeir verða varir við stríðni eða einelti.
Komi upp eineltismál eru það umsjónarkennari og/eða skólastjóri sem fara yfir málið með öllum aðilum þess og ákveða þeir næstu skref.
Stundum þarf að fá sálfræðing skólans með í framhaldsvinnu.
Alltaf er haft samband við heimilin og unnið í samráði við foreldra/forráðamenn.
Nánari upplýsingar um stefnu skólans í eineltismálum er að finna undir Skólanámskrá á heimasíðu skólans.
Skólaakstur
Við daglegan akstur nemenda eru notaðir 3 skólabílar.
Skólinn ber ábyrgð á nemendum frá því að þeir eru sóttir á morgnana og þar til þeim er skilað að loknum skóladegi. Skólinn og foreldrar þurfa að hjálpast að við að brýna fyrir nemendum aðgæslu kringum skólabílana, hvort sem það er heima, á þjóðvegi eða við skóla. Nauðsynlegt er að nota endurskinsmerki þegar að dimma tekur og allra veðra er von. Foreldrar eru beðnir um að láta bílstjóra vita ef ekki á að sækja börn þeirra vegna veikinda eða leyfa. Foreldrar þurfa að athuga að skólabílar geta ekki beðið lengi ef nemendur láta bíða eftir sér á morgnana. Í slíkum tilvikum verða foreldrar sjálfir að koma börnum sínum í skólann. Öllum er skylt að nota bílbelti í skólabílunum.
Heimsóknir nemenda
Skólinn fer fram á það við foreldra að heimsóknir nemenda á milli bæja verði ákveðnar heima, a. m. k. með þeim fyrirvara að ekki þurfi að koma til hringinga eða að nemendur séu að semja um slíkt sín á milli í skólanum. Gott væri að fá orðsendingu með börnunum varðandi þessar heimsóknir. Ekki er heldur víst að pláss sé í skólabílunum svo að það þarf einnig að hafa samband við skólabílstjóra.
Ófærð og óveður
Veðurfar í skólahverfinu getur verið afar ólíkt á milli svæða og því getur þurft að fella niður kennslu þó að veður sé skaplegt á einhverjum hluta svæðisins: Ef fella þarf niður kennslu vegna illviðris eða ófærðar, er hringt heim til foreldra. Ef margir símar verða sambandslausir í rafmagnsleysi, þá tilkynnt í Ríkisútvarpinu milli kl. 7 og 8.
Það er fyrst og fremst ákvörðun foreldra að halda börnum sínum heima ef þeir telja slíkt rétt vegna veðurs. Með slíkt er farið eins og um leyfi væri að ræða. Tilkynna skal skólabílstjóra svo og skólastjóra/umsjónarkennara þá ákvörðun.
Tónlistarnám.
Steinunn Pálsdóttir sér um tónlistarkennslu. Kennt er á píanó, gítar, harmonikku og blokkflautu, eftir því sem nemendur óska. Í vetur munu allir nemendur í 1.-6. bekk fá 1-2 tónlistartíma á viku, þar sem m.a. verður spilað á blokkflautu, sungið og lært um nóturnar.
Námsbækur og gögn
Það er aldrei of oft brýnt fyrir nemendum að ganga vel um skólann og fara vel með þær námsbækur og gögn sem þeir fá að láni í skólanum. Laugargerðisskóli útvegar nemendum sínum allar nauðsynlegar námsbækur. Mikilvægt er að nemendur fari vel með allar bækur sem þeim eru látnar í té því sumar þeirra eru notaðar aftur og aftur. Þessar bækur eru eign skólans og ber nemendum að skila þeim að vori. Ákveðið hefur verið að nemendur eigi að nota teygjumöppur eða plastmöppur utan allar bækur sem skólinn lánar þeim. Ef nemandi týnir eða skemmir námsbók ber honum að bæta þann skaða. Nemendur þurfa að vera með góða skólatösku fyrir bækur og ritföng.
Heimanám
Undirstaða þess að góður námsárangur náist í skóla er að heimanám sé vel rækt. Heimanám getur verið mismunandi eftir bekkjum og námsgreinum.
Nemendur 1. 3. og 4. bekkja lesa daglega heima og fá annað heimanám afhent á fimmtudögum. Nemendur 5. – 7. bekkja eru með lestrarkort vegna heimalesturs. Annað heimanám er skráð í Skóladagbók. Nemendur 8. – 10 bekkja skrá í Skóladagbók allt heimanám sitt. Einnig skrá kennarar heimavinnuáætlanir í Mentor, þannig að auðvelt er fyrir kennara og foreldra að fylgjast með hvað er unnið og hvað ekki. Eftir því sem betur er fylgst með námi barnanna og þeim mun meiri hvatningu sem þau fá, verða börnin áhugasamari, jákvæðari og ná betri árangri. Foreldrar eru beðnir að nota dagbækur eða lestrarkort til að koma skilaboðum til kennara varðandi heimanám, t.d. ef nemandi gat ekki unnið það vegna óviðráðanlegra atvika. Ef einhverjar spurningar eða óskir koma upp hjá foreldrum í tengslum við heimanám, þá vinsamlegast hafið samband við umsjónarkennara nemandans. Verum dugleg að skrifa í dagbókina og styðja þannig við heimanámið.
Mötuneyti
Mötuneyti hefur verið starfrækt við Laugargerðisskóla frá stofnun skólans. Boðið er upp á fjölbreyttan morgunverð og heitan mat í hádeginu. Nemendum er raðað á borð eftir bekkjardeildum og eiga því allir ákveðið sæti í borðstofunni, bæði í morgun- og hádegismat. Ætíð er starfsmaður á gæslu í borðsal og aðstoðar yngstu nemendurna.
Óskilamunir
Æskilegt er að fatnaður nemenda sé merktur. Tapist flíkur eða annað í skólanum, geta foreldrar snúið sér til skólaliða sem geyma óskilamuni. Nauðsynlegt að góður hanki sé á úlpunum svo þær liggi ekki alltaf á gólfinu.
Útivist
Nemendur eiga að klæða sig eftir veðri og gildir einu hvort veður er kalt, blautt eða þurrt. Allir nemendur eru skyldugir að fara í útivist á hverjum degi í 15 mínútur (kl:10.50 –11.05), ef veður leyfir. Í frímínútum eftir hádegi er ætlast til að nemendur fari út sé veður skaplegt.
Námsmat – einkunnir
Nemendur fá afhentar einkunnir eða umsagnir þrisvar á vetri, í byrjun nóvember, í febrúar og í lok maí. Í lok 1. og 2. annar hitta nemendur og foreldrar/forráðamenn umsjónarkennara og fá einkunnir og umsagnir. Í 4. – 10. bekk eru einkunnir gefnar í heilum og hálfum tölum. Nemendur í 1. – 3. bekk fá umsagnir. Námsmat er í endurskoðun í vetur, stefnt er að fjölbreyttara námsmati.
Samræmd könnunarpróf í 4. 7. og 10.bekk.
20.,21.og 22. september verða samræmd könnunarpróf í íslensku, ensku og stærðfræði í 10. bekk. 23.og 24. september verða samræmd könnunarpróf í 4. og 7. bekk í íslensku og stærðfræði. Þessi próf eru yfirfarin í Reykjavík og útkoma þeirra kynnt nemendum og forráðamönnum þeirra þegar niðurstöður liggja fyrir. Vonandi í byrjun október.
Íþróttir
Nemendur stunda íþróttir 3-4 tíma á viku. Fastir sundtímar eru á mánudögum í vetur. Í Laugargerði er útisundlaug og er því sundkennsla háð veðri. Áhersla er lögð á góða umgengni. Nemendum ber að ganga vel um, raða skóm og hengja útifatnað í anddyri íþróttahússins, sömuleiðis að hengja upp föt sín í búningsklefum. Nemendur eiga að fara í sturtu eftir hvern íþróttatíma og þvo sér áður en farið er í sundlaugina. Íþróttakennari sér um baðvörslu í karlaklefa en skólaliði sér um baðvörslu í kvennaklefa eftir þörfum. Nemendur eiga að hafa hreinan og merktan íþróttafatnað, handklæði, innanhússkó, sundföt og sundgleraugu. Þá þurfa nemendur tösku undir fatnað sinn. Ef nemendur geta ekki mætt í íþróttir eða sund t.d. vegna veikinda, þurfa foreldrar að votta það við umsjónarkennara og ef um langvarandi veikindi eða meiðsl er að ræða, þurfa nemendur að skila læknisvottorði.
Félagsstarf nemenda
Starfandi er nemendaráð í skólanum með fulltrúum nemenda í 7. – 10. bekk. Nemendaráð annast í samvinnu við skólastjóra og fulltrúa kennara, skipulag á félags og skemmtanalífi í skólanum, útgáfu skólablaðs, fjáröflun til ferðasjóðs o.fl. Umsjón með nemendaráði hefur Sigurðpur Jónsson
Stefnt er að því að nemendum á mið- og elstastigi standi til boða félagsstörf a.m.k. einu sinni í mánuði og hjá yngsta stigi séu bekkjakvöld 2-3 sinnum á vetri. Sent verður heim skóladagatal með skipulagi á félagsstarfi og hvaða foreldrar eru á vakt. Í skólanum er félagsmiðstöðin Elding sem Foreldrafélag Laugargerðisskóla sér um í samvinnu við skólann. Foreldrar sjá um opin hús sem auglýst eru í mánaðarbréfi skólans og skiptast á að vera á gæslu á íþróttaæfingum hálfsmánaðarlega eftir skóla.
Heimabyggðin
Stefnt er að því að nemendur skólans kynnist sinni heimabyggð með því að skoða sitt nánasta umhverfi. Náttúran, sagan og atvinnuvegir í héraðinu, auðlindir og nýting þeirra er það sem við viljum að nemendur hafi kynnst við lok skólagöngu hér.
Reynt er að heimsækja staði eins og Rauðamelsölkeldu, Rauðukúlur, Landbrota- og Rauðamelslaugar, Eldborg, Gullborgarhraun, skógræktarsvæði, jarðhitasvæði, virkjanir og sem flestar gerðir atvinnustarfsemi.
Árlega er farið með yngstu börnin í Skógarnesfjöru.
Óvissuferð
Að vori er farið í óvissuferð með þá nemendur sem hafa meðaleinkunnina 9 í punktakerfi skólans. Ferðin er ákveðin og skipulögð af kennurum og nemendum haldið í óvissu þar til komið er á áfangastað.
Kynning á framhaldsnámi
Nemendur í 10. bekk fara í ferð til Reykjavíkur þar sem heimsóttir eru framhaldsskólar, fyrirtæki og söfn. Einnig eru skólar á Vesturlandi sérstaklega kynntir.
Skólaferðalög
Á tveggja eða þriggja ára fresti fara nemendur elstu bekkja í 3-4 daga ferðalag innanlands.
Elstu nemendurnir fóru í ferðalag sl. vor og ekki verður farið í ár.
Skólabúðir
Nemendum í 6.-7. bekk gefst kostur á að fara í skólabúðir annað hvert ár. Síðastliðið skólaár fóru nemendur í þangað. Nemendum í 9.- 10 bekk gefst kostur á að fara í skólabúðir á vegum UMFÍ á Laugum Sælingsdal annað hvort ár, stefnt er að fara þangað í ár.
Leikhúsferðir
Stefnt er að því að allir nemendur eigi kost á einni leikhúsferð eða annarri skemmtiferð á hverju skólaári. Foreldrafélag Laugagerðisskóla skipuleggur leikhúsferðir og reynt er að fara á sem flestar sýningar á Vesturlandi.
Samskipti við aðra skóla
Töluvert samstarf er við grunnskóla á Vesturlandi: Grunnskólann Búðardal, Heiðarskóla, Grunnskóla Borgarfjarðarsveitar, Reykhólaskóla, Grunnskóla Snæfellsbæjar Lýsuhóli og Varmalandsskóla og Grunnskóla Borgarness. Samstarfsdögum þar sem nemendur í samstarfsskólunum hittast í íþróttum og leikjum hefur verið hætt vegna sparnaðar. Stefnt er á að hafa samstarfið meira við nágrannana, Borgarnes og Lýsuhól. Eitt “Lyngbrekkuball” verður verið haldið fyrir 8-10 bekk fyrir alla skólana á vorönn. Varmalandsskóli mun einnig bjóða upp á jólaball.
Útikennsla
Að vori og hausti er reynt að nota umhverfi skólans til kennslu.
Á haustin fara yngri nemendur í vettvangsferðir og safna gróðri og dýrum sem notað er í líffræði og umhverfiskennslu.
Eftir að prófum lýkur á vorin eru 2-4 dagar sem kallast Vordagar. Ýmist eru nemendur í skóla þessa daga eða á heimilum í skólahverfinu. Í skólanum er unnið að gróðursetningu Yrkjuplantna, áburðargjöf og umhirðu gróðurs á skólalóð og í skólaskóginum. Settur er pappamassi kringum nýgróðursettar plöntur til að tefja illgresisvöxt og hindra að grasið kæfi litlar plöntur. Einnig er tekið til á skólalóð, leiktæki máluð, skjólveggir fúavarðir og rusli komið í gám.
Vordagar á sveitabæjum eru skipulagðir miðað við aldur og þær aðstæður sem eru á hverjum bæ. Til er verkefnasafn sem valið er úr. Þannig geta nemendur unnið verkefni tengd sauðfé á sauðfjárbúum og annars konar verkefni á kúabúum.
Skólareglur
1. Nemendum ber að sækja skóla sinn og mæta stundvíslega í kennslustundir.
2. Samskipti í skólanum skulu grundvallast á gagnkvæmri virðingu, kurteisi og tillitssemi. Nemendur skulu hlýða kennurum og öðru starfsfólki skólans.
3. Allir eiga að ganga vel um skólann sinn, jafnt innan sem utandyra. Hávaði og hlaup eru bönnuð á göngum skólans. Ef nemendur valda tjóni á eigum skólans ber þeim að bæta tjónið. Útiskó skal ekki nota innandyra.
4. Nemendur eru skyldugir til útivistar í löngufrímínútunum. Ef þeir geta ekki farið út vegna veikinda, ber foreldrum að tilkynna það í skólann símleiðis eða skriflega. Í frímínútum eftir hádegi er ætlast til að nemendur fari út, sé veður skaplegt.
5. Neysla tóbaks og hvers kyns vímuefna er bönnuð í skólanum, á skólalóðinni, í skólaferðalögum og alls staðar þar sem nemendur koma saman í nafni skólans.
6. Óheimilt er að vera með gosdrykki og sælgæti, þar með talið tyggigúmmí í skólanum. Nemendur komi ekki með peninga eða önnur verðmæti í skólann að þarflausu.
Bannað er að vera með farsíma. Skólinn tekur ekki ábyrgð á persónulegum munum nemenda.
7. Valdi nemandi ítrekuðum truflunum í kennslustund eða brjóti skólareglur, ber að vísa honum til skólastjóra eða í aðra gæslu. Alltaf er haft samband við foreldra í slíkum tilvikum.
8. Skólareglurnar gilda í skólanum, á skólalóðinni, í skólabílunum og alls staðar þar sem nemendur eru á vegum skólans.
Viðurlög við brotum á skólareglum fara eftir 30. gr. grunnskólalaga nr. 91/2008 um skólareglur og aga í grunnskólum og punktakerfi skólans.
Punktakerfi
Punktakerfi vegna skólasóknar og hegðunar nemenda í 5.-10. bekk.
Allir nemendur byrja með einkunnina 10 við upphaf hverrar annar. Eftirfarandi atriði leiða til lækkunar á ofangreindri einkunn:
-0.1
að sinna ekki heimanámi
að koma án námsbóka, íþróttafata eða annars sem þarf til að geta stundað námið
að koma of seint í tíma
að vera með sælgæti, þ.m.t. tyggjó
að vera með farsíma eða það annað sem truflað gæti skólastarf
-1.0
Óheimil fjarvist úr kennslustund (eftir 20 mín)
Brottvísun úr kennslustund eða ítrekuð slæm hegðun
-3.0
Áminning skólastjóra: Umsjónarkennari vísar nemanda til skólastjóra, sjá nánar neðar á síðunni
-4.0 Óheimil fjarvist í heilan dag.
-5.0
Það að hafa í fórum sínum eða neyta tóbaks, áfengis eða annarra vímuefna, í skólanum eða í ferðum á vegum skólans.
Bæti nemandi ráð sitt og fái eina eða enga athugasemd á þriggja vikna tímabili vegna liðar a.-f. þá hækkar einkunn hans um allt að 1.0
Umsjónarkennari leitar upplýsinga vegna fjarvistar heilan dag ef forráðamenn hafa ekki tilkynnt hver sé ástæðan eða fengið leyfi fyrir nemanda.
Umsjónarkennari hefur samband við forráðamenn nemanda ef hann er kominn niður í 8.0 og aftur er nemandi er kominn niður í 6.0
Umsjónarkennari vísar málum sem tengjast brotum nemanda á skólareglum til skólastjóra, hafi ekki tekist að leysa úr þeim í samvinnu við heimili.
Ef nemandi fer niður í einkunnina 5.0 er haldinn fundur með forráðamönnum hans og skólastjóra og reynt að finna leiðir til að bæta hegðun hans. Ef viðkomandi nemandi bætir sig ekki og einkunn hans lækkar enn frekar þá verður málinu vísað til skólanefndar.
Nemandi fer sjálfkrafa í ferðabann í næstu ferð á vegum skólans sem tengist félagslífi eða samskiptum við aðra skóla ef hann er kominn niður í einkunnina 5.0
Eftir að nemandi hefur tekið út sitt ferðabann fellur það niður og í byrjun næstu annar er hann aftur kominn með einkunnina 10
Nemendur og forráðamenn fá birta punktastöðuna reglulega
Einkunn tengd punktakerfi birtist í vitnisburði í lok hverrar annar.
Þeir nemendur sem hafa meðaleinkunnina 9.0 eða meira að vori verða verðlaunaðir með óvissuferð.
Heilsugæsla
Heilsugæslu í Laugargerðisskóla er sinnt af Heilsugæslustöðinni í Borgarnesi. Skólahjúkrunarfræðingur er Rósa Marinósdóttir. Stefnt er að því að hjúkrunarfræðingur komi einu sinni í mánuði.
1. bekkur. Mæld hæð, þyngd, sjón, heyrn, (ef þurfa þykir) og litskyn.
4. bekkur. Mæld hæð, þyngd og sjón.
7. bekkur. Mæld hæð, þyngd og sjón.
9. bekkur. Mæld hæð, þyngd, sjón, heyrn og læknisskoðun.
Hjúkrunarfræðingar sjá um skoðanir og annað eftirlit samkvæmt tillögum landlæknis.
Hjúkrunarfræðingar bjóða upp á viðtalstíma fyrir nemendur á skólatíma, þá daga sem hjúkrunarfræðingur er í skólanum.
Spurningarlisti verður sendur heim með 6 ára börnum og með öllum nýjum nemendum í byrjun skólaárs.
Hjúkrunarfræðingur er með fræðslu í bekkjunum.
Ónæmisaðgerðir eru eftirfarandi:
12 ára. Ónæmisaðgerð gegn rauðum hundum, mislingum og hettusótt. (MMR).
14 ára. Ónæmisaðgerð gegn mænuveiki, barnaveiki og stífkrampa.
Þegar börn flytjast á milli landshluta og skóla, þurfa forráðarmenn barna að tilkynna það skólahjúkrunarfræðingi viðkomandi skóla. Nauðsynlegt er fyrir skólahjúkrunarfræðing að hafa vitneskju um allar ónæmisaðgerðir, sjúkdóma og lyfjagjafir nemenda.
Lyfjagjafir
Nemendum er óheimilt að vera með lyf í skólanum án vitneskju kennara eða skólahjúkrunarfræðings. Nauðsynlegt er að láta umsjónarkennara eða skólastjóra vita um allar langtímalyfjagjafir, þó svo að nemendur þurfi ekki að taka lyfin á skólatíma.
Óheimilt er að gefa barni lyf í skóla án vitundar foreldra.
Ef nemendur slasast á skólatíma, veita kennarar og starfsfólk fyrstu hjálp. Ef barn þarf að komast til læknis, er haft samband við heimilið. Skólinn sér um að koma barninu til læknis í fylgd starfsmanns, ef ekki næst í foreldra eða forráðamenn.
Influensa
Viðbragsáætlun hefur verið gerð fyrir skólann, vegna hættu á influensufaraldri, hægt er að lesa hana á heimasíðunni. Foreldrum/ forráðamönnum einnig bent á að lesa upplýsingar á influensa.is
Flúorskolun
Öllum nemendum er boðið upp á flúorskolun tvisvar í mánuði. Kennarar sjá um það.. Foreldrar verða að láta vita ef barn á ekki að fá flúor.
Lús
Töluvert hefur borið á lús í héraðinu undanfarin ár. Foreldrar eru hvattir til að fylgjast vel með hári barna sinna og grípa til viðeigandi ráðstafanna ef upp kemur lús. Lús fer ekki í manngreiningarálit og geta allir fengið lús. Nauðsynlegt er að láta kennara viðkomandi barns vita ef upp kemur lús. Hjúkrunarfræðingar á Heilsugæslustöðinni eru tilbúnir til að gefa ráð en kembing og meðferð er á ábyrgð foreldra.
Svefn
Foreldrar og forráðarmenn eiga að sjá til þess að börn þeirra komi úthvíld í skólann, það gerir nemandann hæfari til að takast á við verkefni dagsins og öllum líður betur.
Svefnþörf barna er mikil, flest börn þurfa að sofa 8-10 klukkustundir á sólarhring.
Útivistartími barna
Börn 12 ára og yngri mega ekki vera á almannafæri eftir kl. 20:00 nema í fylgd með fullorðnum. Börn sem eru á aldrinum 13 til 16 ára skulu ekki vera á almannafæri eftir kl. 22:00 nema þau séu á á heimferð frá viðurkenndri skóla -, íþrótta eða æskulýðssamkomu. Foreldrar eða forráðamenn barna skulu sjá til þess að börn hlíti ákvæðum þessa kafla um útivistartími og virði aldursmörk og annað í því sambandi.
Næring
Algengt er að krakkar drekki of mikið gos og borði skyndibitamat en það er yfirleitt ekki næringaríkur matur fyrir börn sem eru að vaxa. Svona fæði getur líka leitt til offituvandamála sem getur orðið erfitt að taka á seinna meir. Hollt og gott fæði er mikilvægt fyrir einbeitingu og þroska barna.
Hreyfing
Hreyfing er nauðsynleg fyrir alla og mikilvægt er að foreldrar hjálpi börnum sínum að finna hreyfingu sem hentar. Mælt er með rösklegri hreyfingu í 60 mínútur á dag og getur það verið af ýmsum toga t.d. að ganga, synda, hlaupa, hjóla, dansa eða skipulagðar íþróttir.
Hreinlæti
Hreinlæti er eitthvað sem börn hafa ekki alltaf tilfinningu fyrir og þess vegna er mikilvægt að foreldrar og forráðarmenn sjái til þess að börn þeirra þrífi sig vel, að þau skipti reglulega um föt, bursti tennur, þvoi sér um hendur eftir að hafa verið á salerninu o.s.frv. Börn í óhreinum fötum geta orðið fyrir stríðni.
NEMENDUR LAUGARGERÐISSKÓLA VETURINN 2010-2011
Heimili Sími Afmæli
LEIKSKÓLADEILD
Aron Sölvi Atlason Dalsmynni 4356656 070908
Kristín Lára Eggertsdóttir Hofsstaðir 4356870
Um- Ayush Khass-Erdene Miðhraun 6936783
Friðjón Haukur Kristjánsson Snorrastaðir 4356628 240307
Gísli Sigurbjörnsson Minni-Borg 4356866 021006
Ingibjörg Eggertsdóttir Hofsstaðir 4356870 090506
Kolbrún Katla Halldórsdóttir Hrossholt 4356650 280906
1. BEKKUR
Eyvindur Enok Sigurðsson Laugargerði 4356605 180404
Jón Haukur Erpsson Kolviðarnes 4356772 030504
Hafdís Lóa Sigurbjörnsdóttir Minni-Borg 4356866 151104
3. BEKKUR
Jóna María Gísladóttir Mýrdalur 4356637 160102
Steinunn Ósk Sigurðardóttir Miðhraun 4356786 190602
4. BEKKUR
Ayushtseren Khass-Erdene Miðhraun 6936783 110501
Bjarki Þór Ásbergsson Hraunholt 4371866 080301
Hallbjörn Heiðar Sigurðsson Krossholt 4211282 280601
5. BEKKUR
Árbjartur Angi Andrésson Ystu-Garðar 4356646 171100
Inga Dóra Sigurbjörnsdóttir Minni-Borg 4356866 241000
Tomasz Damian Sidorowicz Lynghagi 8486271
6. BEKKUR
Guðbrandur Tumi Gíslason Mýrdalur 4356637 050399
Helga Þórðardóttir S-Lágafell 4356639 020199
Selma Rakel Gestsdóttir Kaldárbakki 4356735 240199
Þórður Már Sigurðsson Laugargerði 4356605 180199
7. BEKKUR
Vildís Þrá Jónsdóttir Hítarnes 4356649 050398
8. BEKKUR
Ársæll Dofri Andrésson Ystu-Garðar 4356646 140797
Guðný Margrét Siguroddsdóttir Eiðhús 4868828 060397
Ragnar Jónasson Jörfi 4356782 051097
9. BEKKUR
Ingibjörg Jóhanna Kristjánsdóttir Snorrastaðir 4356628 060596
Jófríður Kristjana Gísladóttir Hömluholt 4356800 251196
Valgerður Álfheiður Sigurðardóttir Laugargerði 4356605 060696
10. BEKKUR
Axel Örn Ásbergsson Hraunholt 4371866 271095
Eyvindur Jóhannsson Tröð 4356635 101295
Anna Netresku S-Lágafell 4356639 140895