Tónlistardagur Steinunnar var haldinn fyrsta desember og hittist svo vel til að þá var einnig "Dagur íslenskrar tónlistar" og af því tilefni voru spiluð þrjú íslensk lög samtímis á öllum útvarpsstöðvum svo landinn gæti sungið með.
Hér í skólanum voru ekki eingöngu íslensk lög leikin og sungin heldur slæddust nokkur erlend með og svo að sjálfsögðu nokkur jólalög. Foreldrar mættu vel eins og ávalt á þennan dag og skemmtu allir sér vel. Alltaf gaman að heyra og sjá hvað krakkarnir eru dugleg við tónlistarnámið. (Myndir)