Litlu jólin voru haldin í skólanum þriðjudaginn 20. des. Nemendur mættu kl.12:00 og var byrjað með hefðbundnum stofujólum þar sem skipst var á jólakortum og pökkum en síðan komu foreldrar og aðrir gestir kl. 13:30 og voru þá nokkur tónlistaratriði og séra Guðjón las Jólaguðsspjallið. Siðan var dansað í kringum jólatréð og jólasveinar mættu á svæðið með góðgæti fyrir börnin. Að endingu var boðið upp á heitt súkkulaði og kökur. (Myndir)
Kennsla hefst á nýju ári 4. janúar kl 10:30