Að þessu sinni fór saman dagur leikskólans 6. febrúar og stærðfræðidagurinn. Í tilefni dagsins tóku elstu börn leikskólans sem voru mætt þátt í skutlu keppninni. Eins og sjá má á úrslitum skutlukeppninnar stóðu þau sig með prýði. Þennan dag bjuggu leikskólabörnin til ljósker úr melónum, fóru síðan í ljósagöngu snemma morguns daginn eftir. það má með sönnu segja að leikskólabörnin lýsa upp skólann okkar með útgeislun sinni og ljóskerunum sínum. Við viljum líka benda á að elstu börnin hafa verið að teikna sjálfsmyndir af sér og eru nú að teikna myndir af starfsfólki skólans sem eru til sýnis í matsalnum. Elstu nemendurnir eru komin á fullt í byrjendalæsi, vinna nú söguna Pappírspési, og lykilorðið skuggi. 4 ára börnin læra um líkamann en 5 ára stafi og orð.
Fyrir jól var nemendum og starfmönnum gefinn kostur á að kaupa peysur, niðurgreiddar af foreldrafélaginu, með áprentuðu nafni sínu og skólans. Í vikunni komu svo fulltrúar úr stjórn foreldrafélagsins með peysurnar sem nær allir keyptu og nú skarta þeir sínu fegursta í Henson peysum. (Myndir)