Það er orðin hefð hér í Laugargerði að halda skutlukeppni á degi stærðfræðinnar.Dagur stærðfræðinnar er fyrsti föstudagur í febrúar og það hentar okkur ekki mjög vel því yngstu nemendurnir eru ekki í skólanum. Við færðum því keppnina yfir á mánudaginn og hér koma helstu úrslit. Í fyrsta skipti tóku elstu nemendur leikskólans þátt og stóðu sig frábærlega. Lengsta kastið átti Ingibjörg á Hofsstöðum, heila 6 metra. Lengsta kastið hjá Kolbrúnu Kötlu í Hrossholti var 4,90 m og Omo kastaði 3,70 m. Greinilega upprennandi skutlur og skutlarar hér á ferð. Hjá yngsta stiginu átti Jóna María Mýrdal lengsta kastið, 9,90 m og annar varð Eyvindur Enok Laugargerði með 8,20 m. Helga Lágafelli skutlaði lengst á miðstigi, heila 15,80 m og Þórður Már Laugargerði var með 15,70 m.
Á unglingastigi átti Ársæll Dofri Ystu-Görðum lengsta kast nemendanna, 16,50 m og þar var Ragnar á Jörfa annar með 9,30. Siggi kennari átti líka mjög fín köst en þau voru ekki mæld. Skemmtilegustu tilþrifin átti samt Selma Rakel, Kaldárbakka og áttu kennarar fótum fjör að launa þegar hún tók sig til. (Myndir)