Created on 31 March 2011 Written by Siggi
Published on 31 March 2011
Print

Mars var viðburðarríkur mánuður, með árshátíð sem tókst mjög vel og við vonum að allir hafi skemmt sér vel. Unglingastigið fór á Akranes, skoðaði framhaldsskóla og tók þátt í stærðfræðikeppni.

Síðustu dagar hafa farið í vinnu við auglýsingasöfnun vegna skólablaðsins okkar. Vonandi tekst að koma því í prentun og dreifingu í lok apríl.

Það eru ekki margir dagar eftir af skólaárinu og hvetjum við nemendur til að nýta apríl vel til náms. Það er alltaf erfiðara að halda sig inni við nám þegar vorið er komið á fulla ferð. Við hvetjum foreldra/forráðamenn til að fylgjast vel með að nemendur hafi góð utanyfirföt með sér í skólann, útivist er lágmark tvisvar sinnum á dag.

 

7. apríl verður langur dagur. Á gæslu Hítarnes og Y-Garðar

 

11. apríl byrjar Ásrún með danskennslu, sem verður á mánudögum og fimmtudögum út mánuðinn.

14. apríl er páskabingó. Það hefst kl. 13:30 Notuð verða fjölnotaspjöld sem kosta 600 kr. Tvö slík á 1000 kr. Komið og takið með ykkur sem flesta gesti. Athugið að skólabílarnir aka heim á venjulegum tíma þó bingóið standi líklega lengur. Nemendafélagið verður með opna sjoppu.

Foreldrar leikskólabarna og yngstu nemenda þurfa að vera með sínum börnum.

 

15. apríl er síðasti kennsludagur fyrir páska. Kennsla hefst aftur 26. apríl.

26. apríl er íþróttaæfing. Eiðhús er með gæslu.

 

27. apríl Lyngbrekkuball samstarfsskólanna á Vesturlandi fyrir 8.-10. bekk. Í þetta sinn verður það haldið í Lyngbrekku. Nánari upplýsingar verða sendar heim þegar nær dregur.

28. apríl verður tónlistardagur Steinunnar og danssýning Ásrúnar. Þetta hefst kl. 13:00 í íþróttahúsinu, færist síðan í skólann.

 

 

 

Í lok apríl verður opnað fyrir Leiðsagnarmat fyrir nemendur í 8.-10. bekk

 

 

 

 

 

Starfsfólk Laugargerðisskóla

| + -