Föstudaginn 26. nóvember fór starfsfólk Laugargerðisskóla í námsferð til Skagastrandar. Við þökkum þeim Ásdísi, Áslaugu og Kristjáni fyrir að sjá um nemendur þann dag fyrir okkur.
Haukur eldvarnarfulltrúi kom 24. nóv og var með fræðslu hjá yngstu nemendunum.
Foreldrafélag Laugargerðisskóla verður með jólaföndur í skólanum fimmtudaginn 2. desember kl. 14:00 til 16:30/17:00. Föndurdót verður selt á sanngjörnu verði. Allir foreldrar eru hvattir til að mæta og föndra með börnum sínum. Heimakstur verður á venjulegum tíma fyrir þá sem ekki verða lengur með sínum foreldrum.
Aðventukvöld verður haldið í Lindartungu föstudaginn 3. desember klukkan 21:00. Barna- og kirkjukór flytja jóla- og aðventulög. Ragnar Bjarnason flytur nokkur lög. Kaffiveitingar verða að lokinni dagskrá.
Eftirtaldir þrír dagar verða meira helgaðir föndri og bakstri í skólanum, miðvikudagur 8. des. mánudagur 13.des og miðvikudagurinn 15.des. þessa daga verður bæði bakað og skreytt. Einnig búnir til hlutir til að fara með heim, en ekki síst til að njóta aðventunnar í kyrrð og ró. Nemendur geta valið sér verkefni eftir áhuga en einnig er heimilt að stunda nám af kappi fyrir þá sem það kjósa fremur. Foreldrar og aðrir eru velkomnir eins og ávallt.
Jólaball er haldið í Grunnskóla Borgarfjarðar Varmalandi 9. desember fyrir nemendur 8.-10.bekk. Verð kr 2000. Nánari upplýsingar verða sendar til þeirra barna.
Langur dagur hjá nemendum í 5.-10. bekk verður miðvikudaginn 15.desember. Dagskrá líkur kl 20:00. Á gæslu eru foreldrar frá Lynghaga og M-Borg.
Sú venja hefur verið hér í mörg ár að nemendur gefi hverjir öðrum gjafir í tengslum við stofujólin og munu þeir einnig gera það nú í ár. Hámarksverð hverrar gjafar er 500 krónur. Dregið er um gjafirnar í bekkjunum. Gott að skila gjöfum til umsjónarkennara með góðum fyrirvara.
Litlu jólin verða 17. desember. Nemendur mæta í skólann klukkan 12:00 og halda stofujól með bekkjarfélögum og umsjónarkennara, taka upp jólakort og skiptast á gjöfum. Síðan verða hefðbundin litlu jól stundvíslega klukkan 13:30 og eru þá allir velkomnir. Eftir nokkur nemendaatriði verður verðlaunaafhending vegna póstpoka og gluggaskreytingar. Síðan verður dansað kringum jólatréð og vonandi koma jólasveinar í heimsókn. Í lokin verður boðið upp á kakó og smákökur sem nemendur hafa bakað.
Athugið að gleymst hefur að lita jólafrí á skóladagatali en hægt er að nálgast dagatal með lituðum frídögum á heimasíðu skólans
Fyrsti kennsludagur eftir jólafrí verður þriðjudagurinn 4. janúar 2011. Kennsla byrjar kl 10:00 , líka í leikskóladeild.
Gleðileg jól.
Starfsfólk Laugargerðisskóla