Febrúarbréf 2011
Annaskipti og foreldraviðtöl verða vikuna 7. -11. febrúar eftir skóla og á skólatíma. Geti foreldrar ekki mætt á þeim tíma sem þeir fá úthlutað eru þeir vinsamlegast beðnir að láta vita sem fyrst.
Í tengslum við viðtölin minnum við nemendur og foreldra 8.-10.b á leiðsagnarmatið á Mentor, 5-7. bekkur fær leiðsagnarmatið sent heim.
Árshátíðarundirbúningur hefst í febrúar en stefnt er að árshátíðin verði 12. mars.
1. febrúar er starfsdagur kennara og því engin kennsla hjá nemendum. Leikskólinn verður til 14:30.
Dagur stærðfræðinnar er 4. febrúar. Þá eru yngstu nemendurnir ekki í skólanum þannig að við munum færa hann til 8. febrúar. Hin hefðbundna skutlukeppni verður ásamt ýmsum skemmtilegum verkefnum sem í ár tengjast m.a. spilum.
11. febrúar kemur Elín námsráðgjafi í Menntaskóla Borgarfjarðar og ræðir við nemendur í 10. bekk um framhaldsskóla.
Opið hús á vegum foreldrafélagsins verður 11. febrúar, á vakt er Tröð og Snorrastaðir
Langur dagur verður þann 17. febrúar til klukkan 21:00. Nemendur frá Lýsuhólsskóla koma. Á vakt eru Lágafell og Mýrdalur.
15. febrúar. Kynning á Menntaskóla Borgarfjarðar.
Rósa skólahjúkrunarfræðingur kemur 22. febrúar og hittir þá sérstaklega nemendur unglingastigs. Einnig verður hún til viðtals fyrir aðra nemendur sem þess óska.
Klara Bragadóttir sálfræðingur verður á ferðinni í lok mánaðar eða byrjun mars, foreldrar hafið samband við skólastjóra til að panta tíma fyrir nemendur.
Vikuna 21.-25. febrúar fara 9. og 10. bekkur að Laugum.
Leikskólann vantar alltaf púsluspil, ef ónotuð púsl fyrir aldurinn 1-6 ára liggja hjá einhverjum, væri allt slíkt vel þegið.
Á vakt á íþróttaæfingu 8. febrúar er Hítarnes.
Starfsfólk Laugargerðisskóla