Janúarbréf 2011
Ágætu foreldrar og aðrir forráðamenn!
Við óskum ykkur gleðilegs nýs árs og þökkum fyrir árið sem var að kveðja okkur. Við viljum þakka öllum þeim sem hafa komið í skólann og sýnt okkur og því starfi sem hér er unnið áhuga og velvilja. Sérstaklega þökkum við Foreldrafélagi Laugargerðisskóla fyrir vel heppnaðan föndurdag.
Litlu jólin gengu vel og má sjá myndir og annað um þau á heimasíðu skólans.
Við hvetjum alla til að skoða hana reglulega. Þarna eru mánaðarbréfin, myndir og pistlar frá kennurum og nemendum. Slóðin er www.laugargerdisskoli.is Sömuleiðis minnum við á Mentor. Þar geta nemendur/foreldrar séð heimanám, fylgst með ástundun og séð einkunnir.
LESTUR/RITUN. Ennþá er það þannig að flestir fá bók/bækur í jólagjöf. Meðal annars þess vegna og ekki síður vegna vísbendinga um sífellt minni lestur, þá stefnum við að því að nota tímann fram að annaskiptum í lestrarátak. Hjá elsta stiginu verður mikil ritunarvinna fram til annaskipta.
Eins og alltaf er mikið um að vera hér í skólanum, en líklega verður samt janúar rólegri en desember var. Við þurfum nú að einbeita okkur að náminu en ýmislegt er samt á döfinni eins og venjulega. Námsmat verður í gangi fram til mánaðamóta. Annaskipti og foreldraviðtöl verða svo í byrjun febrúar.
Við minnum foreldra á að sjá til þess að börnin mæti vel klædd í skólann. Mjög kalt er þessa dagana og gólfin köld svo gott væri að nemendur hefðu inniskó.
Það er komið að annaskiptum í tónlistarnáminu hjá Steinunni og foreldrar þurfa að láta vita hverjir ætla vera áfram. Kennt verður á blokkflautu, gítar, trommur, harmónikku og píanó. Til þess að kennslan beri sem bestan árangur þurfa nemendur að æfa sig vel heima.
Foreldrar eru beðnir að fylla út miða hér að neðan og senda sem fyrst.
Varðandi greiðslur vegna fæðis og tónlistar, bendum við fólki á að hafa samband við reikningshaldara vegna greiðsludreifingar.
Símatími reiknishaldara er á mánudögum milli 11-12:00. Sími 4356697 8628422