Created on 03 May 2011 Written by Siggi
Published on 03 May 2011
Print

Gleðilegt sumar, takk fyrir veturinn og frábæra mætingu á dans og tónlistardag. Myndir komnar.

Skólablaðið Jökull er nú komið í prentun og væntanlegt í dreifingu í byrjun maí. Ef þið rekist á villur í símaskrá  biðjum við ykkur að láta okkur vita svo vitleysurnar gangi ekki aftur í næsta blaði.

Vorið er að skella á og þetta verður því síðasta fréttabréf skólaársins. Við höfum leitast við að þjappa kennslunni saman yfir vetrartímann með sem allra minnstum fríum þannig að nú eru ekki margir skóladagar eftir.

Oft er kaldara úti en sýnist þegar horft er út um gluggann. Viljum við því biðja ykkur að gæta þess að nemendur séu alltaf klæddir til útivistar miðað við íslenskt veður og hafi með sér húfur og vettlinga. Sund getur verið daglega til vors þannig að allir þurfa alltaf að vera með sundföt.  Ýmiss konar útikennsla verður einnig í maí, en veðrið ræður mestu um það.

Fyrirhuguð er fjöruferð með  1.- 4. bekk. Farið verður einhvern góðan dag í fyrstu eða annarri vikunni í maí. Það verður ákveðið nánar með dags fyrirvara miðað við  veður. Þau þurfa að vera vel  klædd og helst í stígvélum. Leikskólinn fer í heimsókn í Söðulsholt ef veður leyfir.

Skila þarf öllum bókum og öðrum gögnum sem tilheyra skólanum eða bókasafninu til umsjónarkennara. Bókaskiladagur verður 12. maí . Verða þá allar bækur ástandsskoðaðar og skráðar. Munið einnig að skila þarf diskum, hljóðbókum og slíku.

Próf í sundi stendur nú yfir en önnur próf  verða sem hér segir:

                        5.-7.                                     8.-9.b                                           10.b

 

9. maí

Íslenska

Bókmenntir-ritun

Bókmenntir-ritun

10. maí

Náttúrufræði

Danska

Danska

 

 

Náttúrufræði

Náttúrufræði

11. maí

Danska

Enska

Enska

12. maí

Enska

Landafræði/þjóðf.fr

Landafræði/þjóðf.fr

 

 

Málfræði

Málfræði

13. maí

Stærðfræði

Stærðfræði

Stærðfræði

 

1.-7. bekkur er einnig lestrarprófaður.

Munnleg próf í ensku og dönsku verða inn á milli annarra prófa.

4. maí verða tónlistarpróf.

Prófdagana verður líka unnið við ýmis vorverk hér í skólanum. Fyrirkomulag svipað og undanfarin ár, tiltekt, gróðursetning Yrkjuplantna, snyrta og bæta í skjólbeltin, snyrta blómabeð, rífa /laga gömlu snjógirðinguna o.fl. Einnig  fá nemendur svo Vordagamöppuna.

12. maí verður langur dagur hjá yngsta stiginu. Hann stendur til 18:00 og þurfa foreldrar að sækja þau í skólann.

Dagana  16.-18. maí eru heimadagar, nemendur fá að vinna vorverkefni heima  en koma í skólann fimmtudaginn 19.maí, skila vorverkefnum og vinna úr þeim.  Kannski verður eggjakast og keppt í turnbyggingum.  

19. maí kl. 12:25  grillar Foreldrafélag Laugargerðisskóla  eitthvert góðgæti fyrir okkur.  

Þá mæta allir í skólann, líka leikskólabörnin.

Langur dagur er þennan dag fyrir 5.-10. bekk.

Leikskólinn starfar til 24. maí,  starfstími sami og venjulega.

20. maístefnum við að óvissuferð, í 5. – 10. bekk, fyrir þá sem náðu meðaleinkunn 9 á þremur önnum í punktakerfinu. 

Skólaslitin verða föstudaginn 27. maí klukkan 14:00.Að venju verða kaffiveitingar á eftir. Að sjálfsögðu eru allir velkomnir á skólaslitin en sérstaklega bjóðum við 10 ára, 25 ára  og 40 ára útskriftarnemendum að koma og rifja upp gamlar minningar.

Foreldrar beðnir að athuga með óskilamuni.

 

Kveðjur

Starfsfólk Laugargerðisskóla 

| + -