Created on 02 March 2011 Written by Siggi
Published on 02 March 2011
Print

Nemendur 9. og 10. bekkja eru nýkomnir frá Laugum. Þar eru reknar ungmennabúðir og mikið unnið með félagsfærni og samskipti. Allir voru nemendurnir alsælir með dvölina og vafalaust eignast marga nýja vini á Fésbókinni.

           

Nemendur eru nú að undirbúa árshátíðina af fullum krafti. Hafin er vinna við skólablaðið sem verður algjörlega fjármagnað með auglýsingum eins og undanfarin ár. Blaðinu verður dreift um Snæfellsnes og Borgarfjörð. Í blaðinu verður auk hefðbundins efnis símaskrá Eyja- og Miklaholtshrepps og Kolbeinsstaðarhrepps. Endilega látið okkur vita um villur eða breytingar á símanúmerum og netföngum. Þeir sem vilja kom auglýsingum og/eða styrktarlínum í blaðið geta haft samband við Kristínu Björk í Laugargerði eða sent póst á This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Nemendafélag Laugargerðisskóla mun hefja sölu á klósettpappír eftir árshátíð. Vinsamlegast takið þeim vel. Allur ágóði rennur í ferðasjóð og til foreldrafélags.

 

Foreldrakönnun, sem er hluti af sjálfsmatsvinnu skólans, er komin inn á heimasíðu skólans undir Skjöl.

Líðan og viðhorfakönnun verður lögð fyrir nemendur í mars. Það er einnig hluti af sjálfsmatsvinnu skólans.

 

4. mars opið hús sem átti að vera færist yfir á 18. Mars. Sjá neðar

9. mars verður öskudagsskemmtun, hún hefst klukkan 14:00. Þá verður kötturinn sleginn úr tunnunni og allir hvattir til að mæta í grímubúningum. Foreldrar og yngri systkini eru velkomin, eins og alltaf. Nauðsynlegt er að foreldrar fylgi yngstu börnunum.

11. mars mæta allir nemendur í skólann (líka yngsta stig) Þá verður lokayfirferð á leikriti og allt gert klárt.

12. mars. Árshátíð Laugargerðisskóla. Leikritið Emil í Kattholti sett á svið.

Íþróttaæfing verður 15. mars. Á gæslu Ystu-Garðar.

16. mars er stærðfræðikeppni 8.-10. bekkjar í Fjölbrautaskóla Vesturlands. Allir nemendur þessara bekkja mega taka þátt. Í leiðinni munu nemendur í 10. bekk skoða aðstæður í Fjölbrautaskólanum og á heimavistinni.

18. mars farið á diskótek í Óðal. Á gæslu Eiðhús og Hraunholt.

23. mars kemur Klara.

24. mars Langur dagur hjá 5. -10. bekk. Farið á Lýsuhól

29. mars kemur Rósa skólahjúkrunarfræðingur og hittir unglingastigið.

 

 

 

Starfsfólk Laugargerðisskóla

 

 

| + -