Created on 29 October 2010 Written by Siggi
Published on 29 October 2010
Print

Námsmat hefur verið í gangi þessar síðustu vikur og búið er að opna á leiðsagnarmat í mentor fyrir nemendur í 8.-10. bekk.

Starfsdagur er 1. nóvember,  nemendur mæta ekki í skólann þann dag en  kennarar vinna við námsmat og undirbúa foreldraviðtöl. Leikskólinn verður opinn eins og venjulega.

Foreldraviðtöl verða vikuna 8.-11. nóvember. Vinsamlegast hafið samband ef tíminn hentar ekki.

3. nóvember er forvarnardagur hjá unglingastiginu. Hann er haldinn í öllum grunnskólum landsins. Dagurinn er helgaður nokkrum heillaráðum sem geta forðað börnum og unglingum frá fíkniefnum, ráðum sem eiga erindi við allar fjölskyldur í landinu.

Grænfánadagur er líka 3. nóvember. Þá kemur fulltrúi frá Landvernd og afhendir okkur Grænfánann í þriðja sinn. Nemendur bjóða upp á kaffi og með því í tilefni dagsins. Við hvetjum alla til að koma og fagna þessum áfanga með okkur. Dagskráin hefst kl. 14:00

 11. nóvember verður Forvarnar- og æskulýðsball í íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi frá kl. 19:30-23:00. Foreldrafélagið sér um skipulagningu. Skila þarf  skriflegu leyfi frá foreldrum til skólastjóra.

Rósa kemur  þriðjudaginn 16. nóvember og skoðar 1.-4. bekk.

 Miðvikudaginn 24. nóvember kemur Klara.

24. nóvember verður Tónlistardagur Steinunnar. Hvetjum foreldra , ættingja og vini til að koma og hlusta. Hefst dagskráin klukkan 13:00.

25. nóv. fara nemendur í 5. – 10. bekk á Lýsuhól. Þau leggja af stað héðan strax eftir skóla og fara þaðan klukkan 21:00.

Vikuna 20.-26. nóvember verður þemavika þar sem unnið verður með átthagana.

Íþróttaæfing er 16. nóv, Kaldárbakki á vakt.

 

Starfsfólk Laugargerðisskóla

| + -