Created on 30 September 2010 Written by Siggi
Published on 30 September 2010
Print

Handbók foreldra og skóladagatal var sent heim í síðustu viku. Vinsamlegast hafið samband ef það hefur ekki borist. Á skóladagatalinu eru langir dagar, opin hús og íþróttaæfingar merktar inn. Einnig hverjir eru á vakt. Handbók Laugargerðisskóla er einnig á heimasíðu skólans. Námskrár, námsáætlanir og ástundun eru inn á Mentor.is. Hvetjum við foreldra til að sækja um lykilorð til Sigurðar Jónssonar This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. og geta þannig fylgst með.

Aðalfundur Foreldrafélags Laugargerðisskóla var haldinn 14. september. Í stjórn foreldrafélagsins eru Ásdís Ólöf Sigurðardóttir, Áslaug Guðbrandsdóttir og Þóra Sif Kópsdóttir. Nemendur munu fljótlega fara af stað með klósettpappírssölu og rennur allur ágóðinn af sölunni í Ferðasjóð Nemendafélagsins. Eftir áramót verður klósettpappír seldur fyrir foreldrafélagið. Allar hugmyndir að fjáröflun eru vel þegnar.

Enn eru nokkrir nemendur ekki búnir að skila miða vegna tónlistar. Þeir verða að berast strax eftir helgi.

Á heimasíðu skólans eru komnar myndir og frásagnir af haustferðum nmenda.

Flúorskolað er hálfsmánaðarlega. Ef einhverjir foreldrar vilja ekki að börn þeirra fái flúorskolun þurfa þeir að láta umsjónarkennara vita.

Íþróttaæfingar verða mánaðarlega á vegum Foreldrafélags Laugargerðisskóla. Æfingarnar verða fyrir 6. -10. bekkinga á þriðjudögum eftir skóla og standa til klukkan 16:30. Þegar foreldrar eiga vaktir á æfingunum er það á þeirra ábyrgð að fá einhvern fyrir sig ef þeir forfallast af einhverjum orsökum. Ef vitað er að færri en 6 nemendur ætla að mæta, verður æfingin felld niður og haft samband við gæslubæ um hádegið.

Annaskiptin eru í byrjun nóvember og verður námsmat í gangi síðari hluta október.

 

Símatími reikningshaldara er á mánudögum milli 11 og 12. Símar 4356697 eða 8628422

 

Rósa Marínósdóttir skólahjúkrunarfræðingur kemur mánaðarlega. Rósa verður til viðtals fyrir nemendur og foreldra þá daga sem hún er í skólanum, .

  1. 1.      október er Opið hús. Á vakt Eiðhús og Ystu-Garðar.

11. október er von á heimsókn frá Landvernd til að taka út grænfánavinnu okkar.

Stefnt að Grænfánadegi fljótlega, tiltekt og setja upp skjólgrindur.

12. október verður íþróttaæfing. Á vakt Snorrastaðir.

19. október verður Rósa með skólaskoðun hjá 7. og 9. bekk. Nemendur verða sprautaðir. Ef foreldrar vilja það ekki, vinsamlegast láta Rósu vita.

21. október verður langur dagur hjá 5. - 10. bekk. Á vakt Hömluholt og Jörfi.

 

Klara Bragadóttir sálfræðingur kemur um það bil mánaðarlega til okkar, hún kemur næst í byrjun október. Foreldrar sem vilja að börn sín fái viðtal hjá henni hafi samband við skólastjóra.

 

 

 

Kveðjur

Starfsfólk Laugargerðisskóla

| + -