Created on 22 September 2010 Written by Siggi
Published on 22 September 2010
Print

Nú er skólastarfið komið vel í gang. Veðrið hefur verið nokkuð gott og hefur sparkvöllurinn verið í stöðugri notkun. Muna að klæða sig eftir veðri. Við stefnum á útikennslu/útivinnu sem mest í september.

Skólabækurnar sem nemendur fá afhentar eru eign skólans og það er mikilvægt að þær endist. Allir nemendur eiga að hafa teygjumöppur, eina eða fleiri eftir þörfum, utan um bækurnar. Þetta gildir um allar margnota bækur sem eru í eigu skólans.  

Verið er að uppfæra handbók skólans inni á heimasíðunni, vonandi verður hún send út um miðjan mánuðinn.

Haustferðir í heimabyggð verða innan skamms og fer það aðallega eftir veðri hvenær farið verður. Umsjónarkennarar hópanna sjá um skipulagningu.

Norræna skólahlaupið verður í vikunni 13.-17. september, reynt að velja góðan dag í hlaupið.

Umsjón með félagslífi nemenda hefur  Sigurður Jónsson.

8. september verður kynning fyrir foreldra á námsefni og námsmati.

Langur dagur fyrir 5. – 10. bekk verður 15 eða 16. september. Foreldrar sæki börnin klukkan 22:00.

Könnunarpróf hjá 10. bekk verða 20. sept. íslenska, 21. sept. enska og 22. sept. stærðfræði.

Könnunarpróf hjá 4. og 7. bekk verða 23. september íslenska og 24. september stærðfræði.

Opið hús verður 24. sept frá 19:30-22:30 Á gæslu Jörfi og Lágafell

Þriðjudaginn 28. september kemur Rósa hjúkrunarfræðingur og hittir nemendur í 1. bekk og 4. bekk

Íþróttaæfing 28. sept. Mýrdalur á gæslu.

Aðalfundur Foreldrafélags Laugargerðisskóla verður haldinn þriðjudaginn 14. september klukkan 20:30 í Laugargerðisskóla.

Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundarmál. 2. Kosningar 3.Önnur mál.

Kaffi og meðlæti.                                       Mætum öll  -  verum virk

 

Við viljum svo minna foreldra á að hringja þegar nemendur þurfa leyfi eða þarf að tilkynna veikindi. Alltaf er einhver við á kennarastofunni milli 8 og 8:30, einnig má senda tölvupóst á This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Þeir foreldrar sem vilja að barn þeirra fái viðtöl hjá Klöru Bragadóttur sálfræðingi  í vetur,  vinsamlegast hafið samband við skólastjóra.

 

Tónlistarkennslan er að hefjast. Kennt verður á blokkflautu, gítar, trommur, harmónikku  og píanó. Gjald fyrir 10 skipti er: blokkflauta 4500 kr. gítar, og  bassi  5500 kr. Píanó, trommur, söngur og harmonikka. kr.6000. Auk þess eru yngstu nemendurnir  í fornámi á flautur. Til þess að kennslan beri sem bestan árangur þurfa nemendur að æfa sig vel heima. 

 

 

Kveðjur

Starfsfólk Laugargerðisskóla

| + -