Created on 22 August 2011 Written by Siggi
Published on 22 August 2011
Print

 

Ágústbréf – 2011

 

 

Ágætu íbúar Kolbeinsstaðahrepps og Eyja- og Miklaholtshrepps.

 

Laugargerðisskóli verður settur mánudaginn 22. ágúst klukkan 14:00

 

Nemendur munu hitta umsjónarkennara sinn og fá stundatöflur. 

Heitt verður á könnunni.

Kennsla hefst svo þriðjudaginn 23. ágúst. Þessa fyrstu viku verður kennt fram að hádegi alla dagana og nemendur keyrðir heim klukkan 12:25

Öll börn á skólaskyldualdri þurfa að vera skráð í skólann. Leikskóli verður starfandi líkt og síðasta ár. Þeir foreldrar sem ekki koma á skólasetningu en hyggjast notfæra sér leikskólann í vetur, eru beðnir að hafa samband við skólastjóra í síma 4356601/8944600. 

Leikskólinn tekur til starfa 24. ágúst og verður fram að hádegi fyrstu 2 dagana.

Stefnt er að námsefniskynningu 1.september eftir hádegi. Nánari tímasetning auglýst síðar.

 

Til að auðvelda foreldrum innkaup fylgir hér listi frá kennurum. Þetta er ekki innkaupalisti því flest af þessu gæti verið til frá í fyrra.

Fyrir íþróttir þarf stuttbuxur, stuttermabol, íþróttaskó, sundföt og sundgleraugu.  Yngsta stig þarf ekki íþróttaskó. Gera ráð fyrir útiíþróttum meðan veður leyfir í haust. Einnig ætlum við að nota haustið sem mest til útikennslu/vinnu. Nemendur þurfa að reikna með útikennslu og útiveru næstu vikurnar.

Allir nemendur þurfa að hafa skriffæri, yddara, strokleður.

Að auki:

2.-4. bekkur:límstifti, tréliti og skæri.  1 A 4 stílabók, gjarnan með breiðum línum. Teygjumöppu.

Nemendur í 5.-10. bekk þurfa teygjumöppu fyrir hvert bóklegt fag eða 1-2 harmonikumöppur.

5.-7. bekkur:Penni, límstifti, skæri, tvístrikaða stílabók (1 eða fleiri), reiknishefti og Skólakompu 3.

8.-10. bekkur:Lausblaðamappa, 2-4 A4 stílabækur, reikningshefti (ekki gormabækur),  vasareiknir (hafa samráð við skóla), góður penni, orðabækur í ensku/dönsku æskilegar. Skóladagbók (þarf ekki að vera fullkomin því Mentor verður notaður v. heimavinnu og annars.)

Áður en keyptar verða stílabækur og reikningshefti er gott að athuga hvað til er frá í fyrra.

Æskilegt að sem flestir nemendur eigi inniskó í skólanum og ekki verra að útiföt séu vel merkt.

 

 

Starfsfólk Laugargerðisskóla

 

| + -