Created on 02 December 2011 Written by Siggi
Published on 02 December 2011
Print

 

Foreldrafélag Laugargerðisskóla var með jólaföndur í skólanum sl. fimmtudag. Þökkum við stjórninni fyrir það og foreldrum fyrir góða mætingu. Þetta var ljúfur dagur.

 

Tónlistardagur Steinunnar verður fimmtudaginn 1. des og hefst klukkan 14:00. Hvetjum við alla til að mæta.

 

Aðventukvöld verður haldið á Breiðabliki  fimmtudaginn 8. desember klukkan 21:00. Barna- og kirkjukór flytja jóla- og aðventulög.  Egill Ólafsson   flytur nokkur lög. Kaffiveitingar verða að lokinni dagskrá.

 

Eftirtaldir þrír  dagar verða meira helgaðir föndri  og bakstri í skólanum, þriðjudagur 6. des. mánudagur 12.des og miðvikudagurinn 14.des. Þessa daga verður  bæði bakað og skreytt. Einnig búnir til hlutir til að fara með heim, en ekki síst til að njóta aðventunnar í kyrrð og ró. Nemendur geta valið sér verkefni eftir áhuga en einnig er heimilt að stunda nám af kappi fyrir þá sem það kjósa fremur. Foreldrar og aðrir  eru velkomnir  eins og ávallt.

 

Jólaball verður haldið í Grunnskóla Borgarfjarðar Varmalandi 8. desember fyrir nemendur 8.-10.bekk. Nánari upplýsingar verða sendar til þeirra barna.

 

Langur dagur hjá nemendum í 5.-10. bekk verður fimmtudaginn 15.desember. Farið verður í heimsókn að Lýsuhóli.

 

Sú venja hefur verið hér í mörg ár að nemendur gefi hverjir öðrum gjafir í tengslum við stofujólin og munu þeir einnig gera það nú í ár. Hámarksverð hverrar gjafar er 500 krónur. Dregið er um gjafirnar í bekkjunum. Gott að skila gjöfum til umsjónarkennara með góðum fyrirvara.


Litlu jólin verða 20. desember. Nemendur mæta í skólann klukkan 12:00 og halda stofujól með bekkjarfélögum og umsjónarkennara, taka upp jólakort og skiptast á gjöfum. Síðan verða hefðbundin litlu jól stundvíslega klukkan 13:30  og eru þá allir velkomnir.  Eftir nokkur nemendaatriði verður  verðlaunaafhending vegna póstpoka og gluggaskreytingar. Síðan verður dansað kringum jólatréð og vonandi koma jólasveinar í heimsókn. Í lokin verður boðið upp á kakó og smákökur sem nemendur hafa bakað. 


 

        

Fyrsti kennsludagur eftir jólafrí verður miðvikudagurinn 4. janúar 2012. Kennsla byrjar kl 10:30, líka í leikskóladeild.

Gleðileg jól.

Starfsfólk Laugargerðisskóla

 

 

 

 

| + -