Created on 07 February 2012
Published Date
Print

   Annaskipti og foreldraviðtöl verða vikuna 13. -17. febrúar eftir skóla og á skólatíma. Geti foreldrar ekki mætt á þeim tíma sem þeir fá úthlutað eru þeir vinsamlegast beðnir að láta vita sem fyrst.

Í tengslum við viðtölin minnum við nemendur og foreldra 8.-10.b á leiðsagnarmatið á Mentor.

Árshátíðarundirbúningur hefst í febrúar en stefnt er að árshátíðin verði 10. mars.

7. febrúar er starfsdagur kennara og því engin kennsla hjá nemendum. Leikskólinn verður opinn eins og á venjulegum degi.

Þeir foreldrar leikskólabarna sem óska eftir viðtali eru beðnir að hafa samband við Kristínu eða Herdísi.

 

Dagur stærðfræðinnar er 4. febrúar. Þá eru yngstu nemendurnir ekki í skólanum þannig að við munum færa hann til 8. febrúar. Hin hefðbundna skutlukeppni verður háð í íþróttahúsinu.

 

Langur dagur verður öskudaginn 22. febrúar til klukkan 21:00. Á vakt eru M-Borg og Krossholt.    

Rósa skólahjúkrunarfræðingur kemur 14. febrúar og verður með forvarnarfræðslu fyrir 5.-7. bekk.

Klara Bragadóttir sálfræðingur verður á ferðinni 22. febrúar. Foreldrar hafið samband við skólastjóra til að panta tíma fyrir nemendur.

Leikskólann vantar alltaf púsluspil, ef ónotuð púsl fyrir aldurinn 1-6 ára liggja hjá einhverjum, væri allt slíkt vel þegið.

 

Á vakt á íþróttaæfingu 14. febrúar eru Snorrastaðir.

 

Starfsfólk Laugargerðisskóla

| + - | RTL - LTR
Joomla! is Free Software released under the GNU/GPL License.