Ágætu foreldrar og aðrir forráðamenn!
Við óskum ykkur gleðilegs nýs árs og þökkum fyrir árið sem var að kveðja okkur. Við viljum þakka öllum þeim sem hafa komið í skólann og sýnt okkur og því starfi sem hér er unnið áhuga og velvilja.
Litlu jólin gengu vel og má sjá myndir og annað um þau á heimasíðu skólans.Við hvetjum alla til að skoða hana reglulega. Nokkrar áætlanir hafa bæst við skjölin. Þarna eru mánaðarbréfin, myndir og pistlar frá kennurum og nemendum. Slóðin er www.laugargerdisskoli.is Sömuleiðis minnum við á Mentor. Þar geta nemendur/foreldrar séð heimanám, fylgst með ástundun og séð einkunnir.
LESTUR/RITUN. Ennþá er það þannig að flestir fá bók/bækur í jólagjöf. Meðal annars þess vegna og ekki síður vegna vísbendinga um sífellt minni lestur, þá stefnum við að því að nota tímann fram að annaskiptum í lestrarátak.
Eins og alltaf er mikið um að vera hér í skólanum, en líklega verður samt janúar rólegri en desember var. Við þurfum nú að einbeita okkur að náminu en ýmislegt er samt á döfinni eins og venjulega. Námsmat verður stöðugt fram til annaskipta sem eru 13. febrúar. Við minnum foreldra á að sjá til þess að börnin mæti vel klædd í skólann. Nú er alvöru vetur og gólfin köld svo gott væri að nemendur hefðu inniskó.
• 17. janúar Íþróttaæfing á vegum Foreldrafélags Laugargerðisskóla fyrir 6. – 10. bekk M-Borg er með gæslu.
• Seinni hluta janúar kemur Rósa hjúkrunarfæðingur í skólann og verður með forvarnarfræðslu fyrir 5-7. bekk.
• 18. janúar kemur Klara.
• 26. janúar Langur dagur verður hjá 5. – 10. bekk eftir skóla. Foreldrar sæki börnin klukkan 21:00. Á vakt eru Mýrdalur og Miðhraun 2.
• 16.-20. janúar verða 6. og 7. bekkur á Reykjaskóla, upplýsingar um dvölina verða sendar heim til þeirra barna í lok vikunnar.
Það er komið að annaskiptum í tónlistarnáminu hjá Steinunni og foreldrar þurfa að láta vita hverjir ætla vera áfram. Kennt verður á blokkflautu, gítar, trommur, harmónikku og píanó. Til þess að kennslan beri sem bestan árangur þurfa nemendur að æfa sig vel heima. Steinunn verður í leyfi frá miðjum janúar fram í febrúar en tryggt verður að allir nemendur fái minnst 10 tíma tónlistarkennslu eftir áramót.
Foreldrar eru beðnir að fylla út miða hér að neðan og senda sem fyrst.
Foreldrafélagið hefur pantað skólapeysur sem kosta eftir niðurgreiðslu foreldrafélagsins 3700kr. Mátun fór fram á litlu jólum. Leggja þarf greiðslu inn á reikning foreldrafélagsins 0354-03- 401175 kt. 270267 4919. Staðfesta á nafni barns á This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Nemendur á leikskóla mega koma með eitt dót með sér að heiman á mánudögum.
Afmælisbörn mánaðarins eru: Helga(2), Jóna María (16 ), Þórður Már (18 ), Selma Rakel (24 )