Created on 02 November 2011 Written by Siggi
Published on 02 November 2011
Print

Fyrsta vikan í nóvember verður óhefðbundin því ætlunin er að vera með þemadaga. Unnið verður með vináttu og þau 4 lönd sem eiga fulltrúa í skólanum. Það er Ísland, Mongólíu, Pólland og Þýskaland. Svo styttist í námsmat og verður opnað á leiðsagnarmat í mentor.

Starfsdagur er 7. nóvember,  nemendur mæta ekki í skólann þann dag en  kennarar vinna við námsmat og undirbúa foreldraviðtöl. Leikskólinn verður opinn eins og venjulega.     Ath. ekki verður skólaakstur.

Foreldraviðtöl verða vikuna 8.-11. nóvember. Vinsamlegast hafið samband ef tíminn hentar ekki.

 10. nóv. verður Forvarnar- og æskulýðsball í íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi frá kl. 19:30-23:00. Foreldrafélagið sér um skipulagningu. Skila þarf  skriflegu leyfi frá foreldrum til skólastjóra.

11. -12. nóvember verða Smiðjur á Varmalandi fyrir nemendur í 8.-10. bekk Nánari upplýsingar koma í bréfi og/eða kynnt í foreldraviðtölum.

Miðvikudaginn 23. nóv. er Klara væntanleg.

Þriðjudaginn 29. nóvember kemur Rósa og skoðar 9. bekk, stelpur í 7.-8. bekk fá sprautu 2

24. nóvember er jólaföndur á vegum foreldrafélagsins frá kl. 14:00 til 16:30/17:00. Föndurdót verður selt á sanngjörnu verði. Allir foreldrar eru hvattir til að mæta og föndra með börnum sínum. Heimakstur verður á venjulegum tíma fyrir þá sem ekki verða lengur með sínum foreldrum.

Stefnt er að heimsókn á Lýsuhól seinnipart nóvember.

Íþróttaæfing er 15. nóv, Jörfi á vakt. 

Starfsfólk Laugargerðisskóla

| + -