Created on 26 October 2011 Written by Siggi
Published on 26 October 2011
Print

Góð mæting var á kynningarfundi um námsmat, námsefni sem haldinn var 1. sept.   Búið er að senda Handbók og skóladagatal á öll heimili. Á skóladagatalinu eru langir dagar og íþróttaæfingar merkt inn. Einnig hverjir eru á vakt. Handbók Laugargerðisskóla er einnig á heimasíðu skólans. Námskrár, námsáætlanir og ástundun eru inn á Mentor.is. Hvetjum við foreldra til að sækja um lykilorð til Sigurðar Jónssonar  This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.  og geta þannig fylgst með.

 

Aðalfundur Foreldrafélags Laugargerðisskóla var haldinn 5. september. Í stjórn foreldrafélagsins eru Ásdís Ólöf Sigurðardóttir, Áslaug Guðbrandsdóttir og Þóra Kópsdóttir. Nemendur munu fljótlega fara af stað með klósettpappírssölu og rennur allur ágóðinn af sölunni til Foreldrafélags Laugargerðisskóla og Ferðasjóðs nemenda.

Farið var með 7.-10. bekk í gönguferð frá Snorrastöðum að Litla-Hrauni og síðan Þrællyndisgötuna. Yngri nemendur fóru í Hofsstaðaskóg.

 Flúorskolað verður hálfsmánaðarlega. Ef einhverjir foreldrar vilja ekki að börn þeirra fái flúorskolun þurfa þeir að láta umsjónarkennara vita.

Í október fara af stað íþróttaæfingar sem verða mánaðarlega á vegum Foreldrafélags Laugargerðisskóla. Íþróttaæfingar verða fyrir 5. -10. bekkinga á þriðjudögum eftir skóla og standa til klukkan 16:30. Þegar foreldrar eiga vaktir á æfingunum er það á þeirra ábyrgð að fá einhvern fyrir sig ef þeir forfallast af einhverjum orsökum. Ef vitað er að færri en 6 nemendur ætla að mæta, verður æfingin felld niður og haft samband við gæslubæ um hádegið.

Við viljum minna foreldra á að sjá til þess að börnin séu klædd til útivistar, alltaf er farið út a.m.k. 2 á dag.

 

13. október verður langur dagur hjá 5. - 10. bekk. Á gæslu Lágafell og Lynghagi

 

Klara Bragadóttir sálfræðingur kemur um það bil mánaðarlega til okkar, næst þ. 12. Október. Foreldrar sem vilja að börn sín fái viðtal hjá henni þurfa að hafa samband við Kristínu Björk skólastjóra.

 

18. október verður íþróttaæfing. Á vakt Ystu-Garðar

 

21. október er starfsdagur og kennsla fellur niður þann dag.

 

Rósa Marínósdóttir skólahjúkrunarfræðingur, kemur mánaðarlega. Skólaskoðun hjá 7. bekk verður þriðjudaginn 25. október. Rósa verður til viðtals fyrir nemendur og foreldra þá daga sem hún er í skólanum.

 

 

Kveðjur

Starfsfólk Laugargerðisskóla

| + -