Created on 02 September 2011 Written by Siggi
Published on 02 September 2011
Print

Nú er skólastarfið komið vel í gang. Veðrið hefur verið nokkuð gott  en muna að klæða sig eftir veðri. Við stefnum á útikennslu/útivinnu sem mest í september.

Skólabækurnar sem nemendur fá afhentar eru eign skólans og það er mikilvægt að þær endist. Allir nemendur eiga að hafa teygjumöppur utan um bækurnar.

Verið er að uppfæra handbók skólans inni á heimasíðunni, vonandi verður hún send út um miðjan mánuðinn.

Haustferðir í heimabyggð verða innan skamms og fer það aðallega eftir veðri hvenær farið verður. Umsjónarkennarar hópanna sjá um skipulagningu.

 

1.september kl. 13verður kynning fyrir foreldra á námsefni og námsmati. Byrjað á  unglingastigi. Halla kynnir nýtt efni í íslensku 8.-10.bekkjar og skipulagið sem tengist því. Einnig fer hún yfir stærðfræði, dönsku og sögu hjá unglingastigi og 7. bekk (danska-saga) Svo tekur Siggi við með ensku og miðstigið. Áslaug byrjar á náttúrufræðinni og fer svo yfir í yngsta stigið. Kynning á Byrjendalæsi, þróunarstarfi í íslensku á yngsta stigi.

13. septemberverður frjáls íþróttamót í Borgarnesi, fyrir nemendur 4.-10.bekk , æft að kappi í íþróttatímum.

 

Könnunarpróf hjá 10. bekk verða 19. sept. íslenska, 20. sept. enska og 21. sept. stærðfræði.

Könnunarpróf hjá 4. og 7. bekk verða 22. september íslenska og 23. september stærðfræði.

 

Norræna skólahlaupið verður í september, reynt að velja góðan dag í hlaupið eftir samræmd próf.

Þriðjudaginn 27. september kemur Rósa hjúkrunarfræðingur og hittir nemendur í 1. bekk og 4. bekk

Langur dagurfyrir 5. – 10. bekk verður 28. september. Foreldrar sæki börnin klukkan 21:00. Umsjón með félagslífi nemenda hefur  Sigurður Jónsson.

 

Aðalfundur Foreldrafélags Laugargerðisskóla verður haldinn mánudaginn 5. september klukkan 20:30 í Laugargerðisskóla.

Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundarmál. 2.Önnur mál.

Skólastjóri fer yfir sameiginleg atriði í nýrri námskrá fyrir leik og grunnskóla. Eineltisáætlun Laugargerðisskóla kynnt.

Kaffi og meðlæti.                                       Mætum öll  -  verum virk

 

Þeir foreldrar sem vilja að barn þeirra fái viðtöl hjá Klöru Bragadóttur sálfræðingi  í vetur,  vinsamlegast hafið samband við skólastjóra. Fyrsta heimsókn áætluð um miðjan sept.

Tónlistarkennslan er að hefjast. Kennt verður á blokkflautu, gítar, trommur, harmónikku  og píanó. Gjald fyrir 10 skipti er:  gítar og  bassi  6500 kr. Píanó, trommur, söngur og harmonikka. kr.7000. Auk þess eru yngstu nemendurnir  í fornámi á flautur. Til þess að kennslan beri sem bestan árangur þurfa nemendur að æfa sig vel heima. 

| + -